SI skila umsögn til ESB um iðnaðarhraðal
Samtök iðnaðarins hafa skilað umsögn í umsagnargátt Evrópusambandsins, „Have your say“, vegna löggjafartillögu framkvæmdastjórnar ESB um reglugerð um iðnaðarhraðal (e. Industrial Accelerator Act, IAA) þar sem leitast er eftir að efla samkeppnishæfni evrópsks iðnaðar og hraða afkolun. Samtökin fagna meginmarkmiðum tillögunnar hvað varðar hröðun leyfisveitinga og styrkingu virðiskeðja í Evrópu en vara jafnframt við aðgerðum sem stuðla að verndarhyggju þá sérstaklega hvað varðar upprunaskilgreiningar sem geti haft í för með sér neikvæð áhrif á samkeppni, viðskipti og fjárfestingar.
EFTA/EES ríkin falli undir skilgreiningu á evrópskum uppruna
Í umsögn sinni leggja samtökin ríka áherslu á að EFTA/EES ríki njóti sömu stöðu og aðildarríki ESB þegar kemur að skilgreiningu um evrópskan uppruna (e. Union origin). Að mati samtakanna er það forsenda þess að viðhalda einsleitni innri markaðarins, efla samkeppnishæfni og styrkja virðiskeðjur svæðisins. SI meta sem svo að taka þurfi löggjöfina upp í EES samninginn til þess að EFTA/EES ríkin njóti jafnrar stöðu á við ESB ríki en þangað til yrðu EFTA/EES ríkin talin falla undir skilgreininguna sem vinveitt ríki (e. Trusted partners) en þó háð skilyrðum.
Skýr og gagnsæ viðmið nauðsynleg
Samtökin gagnrýna að framkvæmdastjórninni séu veittar of viðtækar heimildir til að afturkalla stöðu vinveittra ríkja. SI telja mikilvægt að slíkar ákvarðanir byggi á skýrum, gagnsæjum og hlutlægum viðmiðum til að draga úr réttaróvissu fyrir atvinnulífið og tryggja markaðsaðgengi. Jafnframt vara SI við því að umfangsmiklar breytingar á skilgreiningum og kröfum í opinberum innkaupum verði ákveðnar með afleiddri löggjöf. Að mati SI ættu slíkar breytingar að fara í gegnum hefðbundið löggjafarferli til að tryggja fyrirsjáanleika fyrir atvinnulíf. Mikilvægt er að kröfur í útboðum séu skýrar og auki ekki við skriffinsku og kostnað.
Kolefnisviðmið þurfa að endurspegla raunveruleg framleiðsluskilyrði
Í tillögunni heyrir m.a. ál undir strategískan vöruflokk sem má gera hærra undir höfði í opinberum útboðum og við veitingu ríkisaðstoðar sé það með lágkolefnisspor og evrópskan uppruna. Í því samhengi benda SI á sérstöðu íslenskrar álframleiðslu sem byggir á endurnýjanlegum orkugjöfum með einstaklega lágt kolefnisspor. Þá fer mestur hluti af framleiddu áli hérlendis á Evrópumarkað og myndar þannig mikilvægan þátt í styrkingu virðiskeðja innan EES svæðisins. Í ljósi þessa er undirstrika SI mikilvægi þess að fyrirhugaðar skilgreiningar á lág kolefnisframleiðslu taki mið af raun orkunýtingu við framleiðslu til að koma í veg fyrir grænþvott.
Hér er hægt að nálgast umsögnina í heild sinni.

