Sigruðu fyrirtækjasmiðju ungra frumkvöðla með borðspili
Fyrirtækið Þekktu landið! stóð uppi sem sigurvegari í Fyrirtækjasmiðja Ungra frumkvöðla – JA Iceland og var valið fyrirtæki ársins 2026. Fyrirtækið framleiðir fræðandi og skemmtilegt borðspil þar sem markmiðið er að þekkja staðsetningar þekktra staða á Íslandi. Markmið spilsins er að sameina skemmtun og fræðslu, þannig að leikmenn læri meira um landið sitt á meðan þeir spila. Eigendur eru fimm nemendur í Verslunarskóla Íslands, þær Petra Björk Valdimarsdóttir, Thelma Kristbjörg Bæringsdóttir, Hera Björt Aðalsteinsdóttir, Tinna Björg Jóhannsdóttir og Hanna Falksdóttir Krüger.
Uppskeruhátíð verkefnisins fór fram í höfuðstöðvum Arion banka. Alls voru 40 fyrirtæki frá 17 framhaldsskólum valin úr hópi 150 fyrirtækja sem 620 nemendur stofnuðu á önninni til að taka þátt í úrslitum keppninnar árið 2026.
Þekktu landið! mun keppa fyrir hönd Íslands á Evrópukeppni Ungra frumkvöðla – GEN_E 2026 sem fer fram í Riga, Lettlandi dagana 7.-10. júlí. Um 400.000 nemenda hófu keppni í 40 Evrópulöndum og verður eitt lið valið frá hverju landi til að keppa um „Junior Achievement Company of the Year – GEN_E 2026“
Þór Sigfússon forstjóri Sjávarklasans og Guðfinna Helgadóttir rekstrarstjóri á viðskiptasviði Arion banka veittu verðlaun í eftirfarandi flokkum:
1. sæti Þekktu landið! Verslunarskóli Íslands Fyrirtæki ársins sem keppir fyrir Íslands hönd í stærstu nýsköpunarkeppni í Evrópu GEN_E 2026 7.-10. júlí.
2. sæti Grásíða, Verslunarskóla Íslands Fyrirtæki ársins 2. sæti, fær ferð á Arctic Youth Championship í TromsØ 18.-21. maí, samstarfsverkefni með JA Norway, JA Finland og JA Sweden, 30 þátttakendur fara héðan.
3. sæti Eyjakonfekt, Framhaldsskólinn í Vestmannaeyjum Fyrirtæki ársins 3. sæti, fær ferð á Arctic Youth Championship í TromsØ 18.-21. maí.
Aðrar viðurkenningar:
- Frumlegasti sölubásinn: Hlýja Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
- Öflugasta sölustarfið – Smáralind: Blær, Menntaskólinn við Sund
- Áhugaverðasta nýsköpunin: Norður Rækja, Verkmenntaskólinn á Akureyri
- Samfélagsleg nýsköpun: Hugljómi, Verslunarskóli Íslands
- Áhugaverðasta fjármálalausnin: Framtak, Tækniskólinn
- Matvælafyrirtæki ársins: Krílabiti, Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
- Besta hönnunin: Sjávardjásn, Menntaskólinn við Sund
- Áhugaverðasta tækninýjungin: Brauðbox, Tækniskólinn
- Umhverfisvænasta lausnin: Land, Verslunarskóli Íslands
- Besti sjó-bissnessinn: HafBit, Fjölbrautaskólinn í Garðabæ
Myndir/Kristinn Magnússon
Sigurliðið, talið frá vinstri, Petra Bragadóttir framkvæmdastjóri Ungra frumkvöðla-JA Iceland, Petra Björk Valdimarsdóttir, Thelma Kristbjörg Bæringsdóttir, Hera Björt Aðalsteinsdóttir, Tinna Björg Jóhannsdóttir, Hanna Falksdóttir Krüger, Þóra Hrólfsdóttir kennari í Verzlunarskóla Íslands.


