Sjálfsmark Seðlabankans segir framkvæmdastjóri SI
„Ég held að það megi kalla þetta sjálfsmark Seðlabankans,“ segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, í Morgunblaðinu þegar hann er inntur viðbragða við 0,25 prósentustiga stýrivaxtahækkun Seðlabankans.
Verulega misráðin ákvörðun Seðlabankans
Í fréttinni kemur fram að Sigurður hafi varað við því að vextir yrðu hækkaðir og vísað í því samhengi meðal annars í alvarleg vanskil byggingariðnaðarins hjá stóru viðskiptabönkunum sem hafi þrefaldast á fyrri helmingi ársins. „Að okkar mati er þessi ákvörðun verulega misráðin vegna þess að háir stýrivextir hafa þegar haft mikil áhrif. Við erum að sjá það í auknu atvinnuleysi, það er minni hagvöxtur og við erum líka að sjá stöðu atvinnugreina versna töluvert.“
Ná þarf tökum á efnahagsmálum og efla samkeppnishæfni
Þá kemur fram í fréttinni að Samtök iðnaðarins, ásamt fleirum, hafi kallað eftir þjóðarsátt sem gangi út á að leggja grunn að stöðugleika til langs tíma, fara í aðgerðir og þær umbætur sem þarf svo það sé hægt. „Við þurfum annars vegar að ná tökum á stjórn efnahagsmála og hins vegar þarf að efla samkeppnishæfni til að skapa fyrirtækjunum stöðug og góð rekstrarskilyrði þannig að þau geti haldið áfram að fjölga störfum og skapa verðmæt störf. Leggja grunninn að bættum lífskjörum á Íslandi. Ég held að það sé sameiginlegt hagsmunamál allra.“
Morgunblaðið, 20. ágúst 2028.


