Fréttasafn



13. jan. 2026 Almennar fréttir Menntun

Skráning á Menntadag atvinnulífsins hafin

Menntadagur atvinnulífsins fer fram á Hilton Reykjavík Nordica þann 11. febrúar frá 13:30-16:00, húsið opnar 13:00. Yfirskrift dagsins er: Framtíðin kallar. Er menntakerfið að hlusta?

Á íslenskum vinnustöðum fer fram ómetanleg menntun á hverjum degi. Þar öðlast fólk hæfni í nýrri tækni, þróar aðferðir og skapar verðmæti sem styrkja bæði fyrirtæki og samfélagið í heild. Þessi þekking er mikilvæg auðlind, en hún nýtist ekki til fulls nema með markvissu samstarfi atvinnulífs og menntakerfis.

Menntadagur atvinnulífsins er vettvangur þar sem fyrirtæki, menntastofnanir, stjórnvöld og aðrir hagaðilar koma saman til að ræða hvernig menntun getur betur mætt raunverulegum þörfum framtíðarinnar.

Menntadagur atvinnulífsins er samstarfsverkefni SA, SI, SFS, SVÞ, SAF, SFF og Samorku.

Hér er hægt að skrá sig.

Menntadagur-png-2