Skráning á Útboðsþing SI hafin
Útboðsþing SI sem er haldið ár hvert í samstarfi við Mannvirki - félag verktaka og Samtök innviðaverktaka fer fram þriðjudaginn 20. janúar kl. 13-16 í Háteig á Grand Hótel Reykjavík.
Hér er hægt að skrá sig á Útboðsþing SI.
Á þinginu eru kynnt fyrirhuguð útboð ársins á verklegum framkvæmdum opinberra aðila. Fundarstjórn er í höndum Þorgils Helgasonar, viðskiptastjóra á mannvirkjasviði SI.
Dagskrá
- Setning – Árni Sigurjónsson, formaður SI
- Ávarp – Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagsráðherra
- Samantekt – Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
- Reykjavíkurborg – Heiða Björg Hilmisdóttir, borgarstjóri
- Landsvirkjun – Ásbjörg Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri framkvæmda
- Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir – Valur Indriði Örnólfsson, deildarstjóri verkhönnunar og framkvæmda og Dóra Lind Pálmarsdóttir, framkvæmdastjóri hönnunar og áætlana
- Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu – Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri
- Landsnet – Unnur Helga Kristjánsdóttir, forstöðumaður verkefnastjórnunar framkvæmda
- Vegagerðin – Jón Heiðar Gestsson, forstöðumaður framkvæmda
- NLSH – Ólafur Birgisson, sviðsstjóri framkvæmdasviðs
- Betri samgöngur – Sigurður Snædal Júlíusson, verkefnastjóri innkaupa
- ISAVIA - Ingimundur Jónsson, deildarstjóri verkfræðideildar
- Rarik - Kristín Soffía Jónsdóttir, forstöðumaður verkefnastjórnunar framkvæmda
- Veitur – Sólrún Kristjánsdóttir, framkvæmdastýra


