Skýr skilaboð frá ráðherra um mikilvægi íslensks áliðnaðar
Í Morgunblaðinu er vitnað til orða umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra og framkvæmdastjóra SI í umræðum á ársfundi Samáls 2025 og að þar hafi komið fram skýr skilaboð frá ráðherra um að íslenskur áliðnaður væri ekki aðeins framtíðarstarfsemi heldur lykilþáttur í baráttunni gegn loftslagsvánni. Vigdís Diljá Óskarsdóttir stýrði umræðunum.
Álframleiðsla verðmæt útflutningsvara og mikilvægt framlag til loftslagslausn
Í frétt Morgunblaðsins kemur fram að Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, hafi lagt áherslu á að álframleiðsla á Íslandi byggði á endurnýjanlegri orku og væri sú grænasta í heiminum. Það gerði hana ekki aðeins að verðmætri útflutningsvöru heldur einnig mikilvægu framlagi til alþjóðlegra loftslagslausn. Haft er eftir Jóhanni Páli að það væri beinlínis andstætt loftslagsmarkmiðum að draga úr slíkri framleiðslu.
Stjórnvöld móti heildstæða iðnaðarstefnu sem tryggi samkeppnishæfni
Einnig er í frétt Morgunblaðsins vitnað til orða Sigurðar Hannessonar, framkvæmdastjóri SI, sem hafi fagnað áherslum ráðherra og sagt mikilvægt að orka nýttist í verðmætasköpun. Hann hafi hvatt stjórnvöld til að ganga lengra og móta heildstæða iðnaðarstefnu sem tryggði samkeppnishæfni íslensks iðnaðar til framtíðar. Þar skipti máli að horfa ekki einungis á orkumál heldur einnig á skattkerfi, regluverk, menntun, nýsköpun og aðgengi að fjármálum. „Við höfum þetta í hendi okkar,“ sagði Sigurður og vísaði þar til sérstöðu sem Ísland býr yfir hvað varðar náttúruauðlindir og þekkingu.
Áliðnaður áfram hluti af lausn loftslagsmála og verðmætasköpunar
Í frétt Morgunblaðsins kemur fram að á fundinum hafi ríkt almennt samhljómur um að stóriðja, og sérstaklega áliðnaðurinn, ætti áfram að vera hluti af lausninni í loftslagsmálum og grundvöllur áframhaldandi verðmætasköpunar í íslensku atvinnulífi.
Morgunblaðið / mbl.is, 31. maí 2025.