Staða húsnæðisuppbyggingar áhyggjuefni
Við höfum verið að fylgjast vel með þegar kemur að húsnæðisuppbyggingunni og þar auðvitað höfum við áhyggjur af stöðunni. Þetta segir Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI, meðal annars í Bítinu á Bylgjunni. Hún segir að Húsnæðis- og mannvirkjastofnun hafi lýst þessu ágætlega í síðustu mánaðarskýrslu eða talningu þar sem sagt var að það hefði verið ákveðin seigla í markaðnum undanfarið. „Sem við getum tekið undir. Það hefur verið þolinmæði í markaðnum og verktakar hafa verið að reyna að halda áfram. En okkar upplifun er núna og við sjáum einfaldlega í fjölgun atvinnulausra og veltunni að þessi seigla er að klárast. Það er óvissa núna, hár fjármagnskostnaður og íbúðir standa tómar.“ Hún segir að lánaskilyrði Seðlabankans gerir ákveðnum fólki ekki kleift að komast inn á markaðinn eins og er og að margir hafi nefnt það að síminn hafi hætt að hringja eftir áramót.
Hér er hægt að hlusta á viðtalið við Jóhönnu Klöru í heild sinni.
Bítið á Bylgjunni, 22. apríl 2026.

