Fréttasafn



20. feb. 2026 Almennar fréttir Mannvirki Starfsumhverfi

Staðan á íbúðamarkaði mikið áhyggjuefni

Rætt er við Sigurð Hannesson, framkvæmastjóra SI, í kvöldfréttum RÚV um niðurstöður í nýrri greiningu SI sem sýnir að samdráttur er framundan í byggingu íbúða samkvæmt arkitekta- og verkfræðistofum og segir hann stöðuna mikið áhyggjuefni. Þegar Eva Björk Benediktsdóttir fréttamaður ræðir við Sigurð segir hann að áherslur sveitarfélaga í skipulagsmálum og húsnæðisuppbyggingu séu ekki í takt við áhuga almennings. „Þannig að íbúðir eru kannski of stórar eða það vantar bílastæði, eða þær eru ekki á réttu stöðunum og svona. Þannig að þetta er eitthvað sem að sveitarfélögin auðvitað verða að taka til sín.“ 

Í fréttinni kemur fram að Samtök iðnaðarins, stærstu samtök atvinnurekenda á landinu, og VR, stærstu samtök launþega, hafi tekið höndum saman um að finna samhljóm í húsnæðismálum. Sigurður segir og um leið að hvetja aðra til þess að gera það sem þau þurfa að gera til þess að ná umbótum. „Vegna þess að það eru mjög margir sem koma að. Ríkið setur leikreglurnar, sveitarfélögin sjá um framkvæmdina og skipulagsmálin. Og verktakarnir byggja en ríkið í rauninni þarf að taka miklu meiri ábyrgð og vera verkstjóri í þessum málum.“ Hann segir stöðuna mikið áhyggjuefni og skýra vísbendingu um kólnun hagkerfisins. „Vextir eru háir og það tefur uppbygginguna enn frekar og hefur neikvæð áhrif. Það eykur kostnað þannig að allt þetta leggst á eitt og við erum auðvitað í ákveðnum vítahring þarna því að húsnæðisverðshækkanir hafa verið rótin að verðbólgu þangað til kannski núna og vextir háir, sem gerir það að verkum að það er minna byggt en á tímum þar sem að þarf að byggja meira, þannig að hagstjórnin þarna er ekki alveg eins og best verður á kosið.“

RÚV kvöldfréttir, 19. febrúar 2026.  

RÚV vefur, 19. febrúar 2026.

RUV-19-02-2026_2