Staðan í byggingariðnaði gæti orðið verulega þung í vetur
„Við sjáum að atvinnuleysi er að aukast , 40% meira atvinnuleysi er meðal verkamanna í byggingariðnaði en var fyrir ári síðan. Þetta er veruleg breyting á skömmum tíma og við finnum að það eru talsverðar áhyggjur af stöðunni inn í haustið af enn frekari samdrætti þar. Við getum sagt að staðan sé alvarleg,“ segir Þorsteinn Víglundsson, formaður SI, í fréttum RÚV þar sem kemur fram að atvinnuleysi í byggingariðnaði sé að aukast hratt.
Þorsteinn segir greinina stóra og samdráttur finnist langt út fyrir greinina. Atvinnustig hafi verið hátt í greininni undanfarin ár en nú séu blikur á lofti. Þá kemur fram að Þorsteinn segi samdrátt greinilegan í íbúðauppbyggingu sem skýrist af minni sölu vegna þess að vaxtastig er hátt. „Það eru augljós áhyggjumerki á markaðnum fyrir haustið. Það er óhætt að segja það og staðan gæti orðið verulega þung í vetur.“
RÚV, 13. júlí 2026.

