Stærsta viðfangsefni vetrarins er að ná stjórn á efnahagslífinu
„Þetta er virkilega slæm þróun sem við horfum upp á og við höfum talað mjög skýrt um það að stærsta viðfangsefni vetrarins sé að ná stjórn á efnahagslífinu,“ segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, í frétt Sýnar um hækkun verðbólgunnar sem mælist 5,6%.
Sigurður segir að enn sé hægt að bregðast við stöðunni. „Algjörlega. Við hjá SI höfum verið skýr með það að kalla eftir þjóðarsátt við þessar aðstæður til að fara í umbætur og auka stöðugleika til langs tíma.“ Hann segir slíkt kalla á samstillt átak vinnumarkaðarins og stjórnvalda. „Þá þarf að kalla saman ólíka aðila að borðinu, fulltrúa atvinnurekenda, launþega og stjórnvalda. Ef þetta á að gerast þarf skýra forystu frá stjórnvöldum því svona verkefni verður ekki leyst á formlegum fundum í Ráðherrabústaðnum.“
Vísir, 27. ágúst 2026.

