Fréttasafn



10. apr. 2024 Almennar fréttir Innviðir Mannvirki Starfsumhverfi

Starfshópur um einn feril húsnæðisuppbyggingar

Innviðaráðherra hefur skipað starfshóp um einn feril húsnæðisuppbyggingar. Á vef Stjórnarráðsins segir að verkefni hópsins sé að gera tillögur að umbótum varðandi ólík ferli varðandi skipulags- og byggingarmál tengdum uppbyggingu á húsnæði, ýmist í verklagi eða regluverki. Hópurinn á að skila tillögur fyrir lok maí nk.

Verkefnisstjóri starfshópsins er Pétur Ingi Haraldsson, skipulagsfulltrúi. Fulltrúi Samtaka iðnaðarins í starfshópnum er Þorvarður Lárus Björgvinsson hjá Arkís. Aðrir í starfshópnum eru Valdís Ösp Árnadóttir, fulltrúi innviðaráðuneytis, Anna Guðmunda Ingvarsdóttir, fulltrúi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar, Vigfús Þór Hróbjartsson, fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga, og Ólafur Árnason, fulltrúi Skipulagsstofnunar.