Fréttasafn



15. maí 2026 Almennar fréttir Mannvirki Meistarafélag húsasmiða

Stjórn Meistarafélags húsasmiða endurkjörin

Stjórn Meistarafélags húsasmiða, MFH, var endurkjörin á aðalfundi félagsins sem fór fram í í Húsi atvinnulífsins. Í stjórninni eru Jón Sigurðsson, formaður félagsins, Bergur Ingi Arnarson, Einar Árnason, Pétur Þórarinsson og Hilmar Páll Marinósson. Í varastjórn eru Reynir Gylfason, Birkir Örn Arnarson og Daníel Steinarr Jökulsson.

Á fundinum var farið yfir starfsemi félagsins á liðnu ári og rætt um helstu hagsmunamál greinarinnar. Í skýrslu stjórnar kom fram að megináhersla félagsins hafi verið lögð á hagsmunagæslu félagsmanna, útboðsmál, mennta- og starfsréttindamál og aukinn sýnileika faglærðra húsasmíðameistara. Þá hefur félagið lagt sérstaka áherslu á nýliðun ungra meistara, meðal annars með móttöku fyrir nýútskrifaða meistara þar sem 12 nýir félagsmenn gengu til liðs við félagið.

Á fundinum var einnig fjallað um stöðu byggingariðnaðarins, mikilvægi iðnmenntunar og nauðsyn þess að standa vörð um fagmennsku í greininni. Stjórnin lýsti áhyggjum af þróun útboðsmála hjá hinu opinbera og kallaði eftir umbótum á regluverki og rammasamningum.

Fjárhagsstaða félagsins var sögð sterk þrátt fyrir neikvæða afkomu á árinu. Ársreikningur félagsins var samþykktur samhljóða og ræddar voru hugmyndir um breytingar á fyrirkomulagi styrktarsjóðs félagsins.

Í lok fundar voru félagsmenn hvattir til áframhaldandi þátttöku í starfi félagsins og minnt á fyrirhugaða hópferð á Batimat-sýninguna í París 27.-30. september næstkomandi.