Stjórn Samtaka arkitektastofa endurkjörin
Stjórn Samtaka arkitektastofa, SAMARK, var endurkjörin á vel sóttum aðalfundi samtakanna sem fór fram í Húsi atvinnulífsins 28. apríl. Fundurinn endurspeglaði kraftmikið starf samtakanna á liðnu ári, þar sem hagsmunagæsla í krefjandi rekstrarumhverfi og áhersla á gæði í mannvirkjagerð voru í fyrirrúmi. Í stjórn sitja Halldór Eiríksson, formaður, ásamt Ástu Birnu Árnadóttur, Frey Frostasyni og Þorvarði Lárusi Björgvinssyni sem meðstjórnendum. Varamenn í stjórn eru Inga Rut Gylfadóttir og Kristján Örn Kjartansson.
Áður en hefðbundin aðalfundarstörf hófust hélt Elín Þórólfsdóttir frá Húsnæðis-, mannvirkja- og skipulagsstofnun erindi þar sem hún fjallaði um verkefni stofnunarinnar sem snúa að arkitektum. Sérstaklega var rætt um þróun byggingargáttarinnar og mikilvægi þess að einfalda flækjustig í samskiptum við opinbera aðila. Jafnframt var farið yfir verkefni Burðar sem er nýr samstarfsvettvangur um mannvirkjarannsóknir og prófanir. Burður gegnir lykilhlutverki í að efla fagþekkingu og rannsóknir í greininni en fulltrúar SAMARK sitja bæði í stýrihópi og vísindaráði vettvangsins.
Í skýrslu stjórnar fyrir liðið starfsár kom fram að starfsemin hafi mótast af breyttu efnahagsumhverfi og niðursveiflu í mannvirkjagerð. Meðal helstu áherslumála voru umbætur í útboðsmálum, en SAMARK hefur lagt mikla vinnu í að taka saman álitamál varðandi útboð hins opinbera. Áhersla hefur verið lögð á gæði, gagnsæi og faglegar valforsendur í samskiptum við stóra verkkaupa. Samtökin hafa einnig beitt sér í skipulagsmálunum. Samtökin hafa bent á þær tafir sem eru í stjórnsýslunni og mikilvægi þess að auka fyrirsjáanleika í skipulagsferlum sem er forsenda heilbrigðrar uppbyggingar.
Halldór Eiríksson, formaður Samtaka arkitektastofa.


