Fréttasafn



13. júl. 2026 Almennar fréttir Mannvirki Starfsumhverfi

Stjórnvöld bæta gráu ofan á svart og gera það enn dýrara að byggja

„Til þess að bæta gráu ofan á svart ætla stjórnvöld að gera það enn dýrara að byggja. Í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem var lögð fram í sumar kemur fram að fyrirhugað sé að lækka enn frekar endurgreiðslu virðisaukaskatts vegna vinnu manna á verkstað. Ef menn fara niður í núllið eru þetta tvær og hálf til þrjár milljónir á hverja íbúð. Það leggst á annan kostnað við uppbyggingu íbúða. Það dregur enn frekar úr uppbyggingu og skapar samdrátt. Þetta eru mjög neikvæð tíðindi ofan í þessar fréttir af samdrætti í greininni,“ segir Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, í fréttum Sýnar um tæplega 40% aukningu atvinnuleysis í byggingariðnaði. Hann segir þetta mikið áhyggjuefni og að áform ríkisstjórnarinnar geri illt verra.

Mikil hækkun á opinberum gjöldum og sköttum sem dregur úr vilja til að byggja íbúðir

Í fréttinni kemur fram að Samtök iðnaðarins hafi ítrekað vakið athygli á kulnun greinarinnar og að Ingólfur segi tölurnar sýna svart á hvítu að eitthvað þurfi að breytast. „Þetta er alvarlegt. Greinin veltir um sjö hundruð milljörðum króna. Í henni starfa um tuttugu þúsund manns. Greinin er um átta prósent af hagkerfinu, skattsporið er um 190 milljarðar. Þar af áttatíu milljarðar í beinum sköttum. Um leið og það dregur úr finnur hagkerfið fyrir. Svo sinnir greinin mjög mikilvægum þáttum í uppbyggingu íbúðarhúsnæðis, atvinnuhúsnæðis og innviða. Við erum með mikla innviðaskuld.“ Samdrátturinn sé mestur við uppbyggingu á íbúðarhúsnæði og að ýmsar skýringar séu á ástandinu en það þurfi að bregðast við. „Almennt er búið að hægja á hagkerfinu og hægur hagvöxtur. Því til viðbótar hefur verið mikil hækkun á opinberum gjöldum og sköttum, sem dregur úr vilja til að byggja íbúðir.“

Hádegisfréttir Bylgjunnar, 12. júlí 2026.

Vísir, 12. júlí 2026.