Stjórnvöld bregðist hratt við og efli samkeppnishæfni
Nú þegar leikreglur í alþjóðaviðskiptum breytast þurfa stjórnvöld að bregðast rétt við, gæta hagsmuna Íslands, viðhalda eins greiðum aðgangi að helstu mörkuðum og kostur er og efla samkeppnishæfni iðnaðar og atvinnulífs. Þetta segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, í grein í Viðskiptablaðinu með yfirskriftinni Eflum samkeppnishæfni á óvissutímum. Hann segir að það sé forsenda þess að viðhalda þeim góðu lífskjörum sem við þekkjum hér á landi.
Ísland aðlagist breyttum leikreglum í alþjóðaviðskiptum
Sigurður segir heiminn vera að taka stakkaskiptum, breyttir viðskiptahættir, gervigreindarkapphlaup og aukin áhersla á viðnámsþrótt marki kaflaskil í alþjóðavæðingu eins og við höfum þekkt hana undanfarna áratugi. Ísland þurfi að aðlagast breyttum leikreglum í alþjóðaviðskiptum þar sem meira reyni á tvíhliða samskipti.
Mikilvægt að hafa greiðan aðgang að Bandaríkjamarkaði
Í greininni segir Sigurður að lífskjör okkar byggi á því að hér séu framleidd verðmæti í formi vara og þjónustu sem seld séu á erlendum mörkuðum. Forsenda þessa sé greiður aðgangur að helstu mörkuðum. Hann segir að með EES samningnum sé Ísland aðili að innri markaði Evrópu sem sé okkar mikilvægasti markaður en útflutningur til Bandaríkjanna hafi aukist undanfarin ár, sér í lagi hvað varðar vörur sem framleiddar séu af fyrirtækjum í iðnaði. Sá útflutningur hafi tvöfaldast á tveimur árum og ríflega þrefaldast á fimm árum en rekja megi það til vaxtar í hugverkaiðnaði sem gæti orðið verðmætasta útflutningsstoðin við lok þessa áratugar ef allt gangi eftir. Sigurður segir Bandaríkjamarkað líklega stærsti markaðurinn fyrir þann vaxandi og mikilvæga iðnað og því skipti máli að fyrirtækin hafi greiðan aðgang að honum.
Kaflaskil orðin í alþjóðavæðingu
Þá segir Sigurður að ávinningur alþjóðavæðingar hafi verið umtalsverður en á móti hafi framleiðsla færst frá Vesturlöndum sem hafi komið illa við ýmsa hópa. Kaflaskil séu í alþjóðavæðingu núna þegar tollar snarhækka í viðskiptum milli Bandaríkjanna og helstu viðskiptalanda þeirra. En fleira komi til sem valdi þeirri þróun. Hann segir heimsfaraldur og stríðsátök hafi sýnt fram á veikleika alþjóðavæðingar. „Hugmyndin um að hægt væri að nálgast hvað sem er hvenær sem er stóðst ekki þegar á reyndi. Þegar á reyndi var aðgangur að vöru og þjónustu skertur og aðfangakeðjur höktu. Aukið spennustig í heiminum, sem birtist meðal annars í fjölþáttaógnum – netárásum, árásum á innviði og aðra þætti sem varða daglegt líf fólks – ýtir enn frekar undir þessa þróun. Geta samfélagsins til að mæta áföllum – viðnámsþróttur – fær aukið vægi en sem betur fer hefur í lengri tíma lítið þurft að hugsa um slík mál. Framleiðsla færist nær mörkuðum og samskipti við ríki sem aðhyllast svipuð gildi aukast.“
Íslensk stjórnvöld tala fyrir hagsmunum Íslands á alþjóðavettvangi
Sigurður segir að íslensk stjórnvöld hafi sannarlega talað fyrir hagsmunum Íslands á alþjóðavettvangi undir forystu forsætisráðherra og utanríkisráðherra. „Vegna þess að góð lífskjör landsmanna byggjast á frjálsum alþjóðaviðskiptum er mjög mikilvægt að halda Íslandi utan við hverja þá tolla sem ríki Evrópu eða Evrópusambandið í heild kunna að leggja á innflutning þangað.“ Hann segir að sama skapi þurfi að bæta viðskiptakjör við Bandaríkin, okkar vinaþjóð til langs tíma.
Stóra verkefnið er að efla samkeppnishæfni iðnaðar og atvinnulífs
Sigurður segir að stóra verkefnið sé þó að efla samkeppnishæfni iðnaðar og atvinnulífs nú þegar ytri skilyrði fara versnandi og leikreglurnar hafi breyst. Þetta eigi ekki bara við hér á Íslandi heldur hafi stjórnvöld annarra ríkja talað skýrt um þetta. Hann segir að þetta snúi að því að einfalda regluverk, hætta gullhúðun og afhúða regluverkið. Gera þurfi fyrirtækjum kleift að hagræða í rekstri, ekki síst til hagsbóta fyrir neytendur. „Varhugavert er að auka álögur á fyrirtæki við þessar aðstæður.“ Hann segir að flýta þurfi fyrir innviðaframkvæmdum, orkuöflun og einfalda til muna uppbyggingu íbúða. Ferli framkvæmda sé alltof flókið og þurfi að einfalda. Brýnt sé að viðhalda hvetjandi umgjörð nýsköpunar en sem fyrr segir sé hugverkaiðnaður vaxandi útflutningsstoð og geti orðið sú verðmætasta við lok þessa áratugar ef rétt er á málum haldið.
Iðnaðarstefna stökkpallur inn í næsta hagsældarskeið
Í niðurlagi greinarinnar segir Sigurður að forsætisráðherra hafi boðað iðnaðarstefnu fyrir Ísland sem geti orðið stökkpallur okkar inn í næsta hagsældarskeið. Samtök iðnaðarins fagni þessu og muni ekki láta sitt eftir liggja svo slík stefna geti litið dagsins ljós. Þegar heimurinn breytist hraðar en áður þá verði stjórnvöld að bregðast hratt við. Hér reyni á aðgerðir, ekki aðeins orð.
Hér er hægt að lesa greinina í heild sinni.
Viðskiptablaðið / vb.is, 9. apríl 2025.