Fréttasafn



28. maí 2025 Almennar fréttir Starfsumhverfi

Stöðnun í iðnaði hefur víðtæk áhrif á íslenskt hagkerfi

Eftir fjögurra ára vaxtarskeið, sem á köflum einkenndist af miklum vexti og bjartsýni, standa nú mörg iðnfyrirtæki frammi fyrir stöðnun eða samdrætti. Þetta segir Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur SI, í grein í ViðskiptaMogganum sem ber yfirskriftina Stöðnun kallar á skýra sýn, stefnu og aðgerðir. Hann segir að samkvæmt nýjustu gögnum hafi velta iðnaðarins dregist saman og störfum fækkað í greininni, þótt þróunin sé mismunandi milli undirgreina. Breytingarnar megi sjá í öllum helstu greinum iðnaðar, sem hafi verið burðarstoðir atvinnulífs og verðmætasköpunar undanfarin ár. Ingólfur segir að stöðnun iðnaðarins hefur víðtæk áhrif á íslenskt hagkerfi. Iðnaður standi undir um fjórðungi landsframleiðslu og verðmætasköpun hans hafi numið um 900 milljörðum króna árið 2024. Um 52 þúsund manns starfi í iðnaði, sem jafngildir því að nær einn af hverjum fjórum á vinnumarkaði starfi innan greinarinnar.

Til að auka samkeppnishæfni þarf skýra sýn, stefnu og samstillt átak stjórnvalda og atvinnulífs

Samkeppnishæfni atvinnulífsins er hornsteinn efnahagslegra lífsgæða segir Ingólfur og allt sem haldi aftur af framleiðni og skapi ójafnvægi dragi úr getu íslenskra fyrirtækja til að keppa á alþjóðlegum mörkuðum. Hann segir mikilvægt að huga vel að því hvernig hægt sé að auka samkeppnishæfnina með markvissum umbótum. Lykilatriðin séu fjárfesting í innviðum, öflug nýsköpun, menntun og mannauður, sjálfbær orkunýting, og hagkvæmt og skilvirkt starfsumhverfi. Þetta séu allt þættir sem við ráðum yfir – og þar liggi vonin. Ingólfur segir að það þurfi skýra sýn, stefnu og samstillt átak stjórnvalda og atvinnulífsins. Ef samkeppnishæfni íslensks atvinnulífs verði tryggð muni íslenskt efnahagslíf blómstra á ný – öllum landsmönnum til hagsbóta.

Hér er hægt að lesa greinina í heild sinni.

ViðskiptaMogginn / mbl.is, 28. maí 2025.