Fréttasafn



10. feb. 2022 Almennar fréttir

Störfum í íslenskum tölvuleikjaiðnaði fjölgar um 35%

Þorgeir Frímann Óðinsson, formaður Samtaka leikjaframleiðenda, IGI, og framkvæmdastjóri tölvuleikjafyrirtækis­ins Directive Games, segir í viðtali í ViðskiptaMogganum að störfum í íslenskum tölvuleikjaiðnaði hafi fjölgað um 35% á síðasta ári, eða úr 322 starfsmönnum í 435. 

Þorgeir segir jafnframt í ViðskiptaMogganum að stóru fréttirnar séu þær að mikil fjölgun sé að verða í greininni og flest fyrirtæki séu að bæta við miklum fjölda starfsmanna. „Hér eru nú sex fyrirtæki sem eru með meira en tuttugu starfsmenn hvert. Okkar fyrirtæki, Directive Games, hefur til dæmis vaxið úr tveimur starfsmönnum á íslensku skrifstofunni í byrjun árs 2020 upp í 21 starfsmann í janúar á þessu ári og við erum að auglýsa ef­ir fleirum. Það stefnir í að umsvif okkar verði þreföld innan tíðar miðað við það sem var fyrir nokkrum mánuðum. Þá má nefna spútnik-fyrirtækið Myrkur Games sem hyggst fjölga upp í 35 starfsmenn á þessu ári. Svipuð staða er hjá Mainframe Industries og 1939 Games.“ Þá kemur fram í viðtalinu við Þorgeir að fjárfesting í íslenskum tölvuleikjageira á síðasta ári, að CCP frátöldu, hafi verið 35 milljónir Bandaríkjadala eða tæplega 4,4 milljarðar íslenskra króna. Þar vegi þungt 22 milljóna dala fjárfesting í Mainframe og 5 m. dala fjárfesting í 1939.

ViðskiptaMogginn / mbl.is, 9. febrúar 2022.