Fréttasafn



4. mar. 2026 Almennar fréttir Starfsumhverfi

Stríðið getur viðhaldið hárri verðbólgu í enn lengri tíma

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, telur að Íslendingar ættu ekki að verða mjög varir við áhrif stríðsins sem nú geysar í Mið-Austurlöndum á allra næstu dögum. Hins vegar reiði verðmætasköpun bæði hér og annars staðar sig mjög á olíu og því gætu áhrif til lengri tíma verið meiri. Þetta kemur fram í samtali við hann í kvöldfréttum Sýnar. „Stríðsátökin eru sannarlega alvarleg, og vonandi breiðast þau ekki frekar út en orðið er. Þarna er mikið í húfi, því stór hluti olíuframleiðslu í heiminum er á þessu svæði. Olía er auðvitað notuð í mjög margt. Samgöngur er mjög háðar olíu: skipaflutningar, flug og bílaumferð. En hún er líka notuð í margvíslegar vörur, þannig að röskun á aðfangakeðjum getur haft keðjuverkandi áhrif, svo sannarlega. Hún getur haft áhrif á eftirspurn á heimsvísu og verð til hækkunar.“

Þegar Sigurður er spurður hvaða áhrif þetta geti haft á Ísland segir hann: „Til skamms tíma þá bíðum við og sjáum, og vonandi hefur þetta ekki mikil áhrif næstu dagana og vikurnar. En til lengri tíma litið getur þetta ýkt enn frekar þá stöðu sem er uppi í hagkerfinu. Það er að segja valdið enn þá meiri kólnun og viðhaldið hárri verðbólgu í enn lengri tíma.“ Hann er spurður hvort verðbólgan gæti því hækkað enn meira: „Það gæti farið þannig, ef þetta ástand dregst eitthvað á langinn. Stjórnvöld verða auðvitað að fylgjast mjög grannt með þróun mála þarna. Þau og Seðlabankinn geta auðvitað ekki stýrt því hvernig olíuverð þróast í heiminum.“

Sigurður sagði að stríðið geti fengið Íslendinga til að huga að mörgu, líkt og að orkuskiptum. „Við erum mjög háð olíu hér á Íslandi. Við reiðum okkur mjög á hana. Verðmætasköpun byggir að talsverðu leyti á notkun olíu. Þetta undirstrikar mjög orkuöryggi og mikilvægi þess fyrir okkur, við þurfum að huga meira að því, bæði til skemmri og lengri tíma. Orkuskipti hafa verið mikið til umfjöllunar síðustu árin. Við þurfum þar að gefa í ef eitthvað er, og huga að olíubirgðum.“

Hér er hægt að horfa á viðtalið við Sigurð.

Sýn, 3. mars 2026.

Syn-03-03-2026_3Telma Tómasson ræðir við Sigurð í kvöldfréttum Sýnar.