Fréttasafn



13. maí 2025 Almennar fréttir Mannvirki Starfsumhverfi

Stýrihópur skipaður um endurskoðun á byggingarreglugerð

Félags- og húsnæðismálaráðherra hefur skipað stýrihóp um endurskoðun á byggingarreglugerð. Á vef Stjórnarráðsins kemur fram að hópnum sé ætlað að vinna tillögur um gagngerar breytingar á regluverkinu með áherslu á að einfalda umgjörð um byggingariðnað til að lækka byggingarkostnað og leggja grunn að stöðugleika á húsnæðismarkaði. Þá kemur fram að stýrihópnum sé einnig ætlað að fylgja tillögunum eftir og vinna að breyttu fyrirkomulagi byggingareftirlits til að auka neytendavernd og draga úr byggingargöllum.

Í stýrihópnum eru:

  • Hreiðar Ingi Eðvarðsson, formaður, fulltrúi ráðherra,
  • Hildur Dungal, fulltrúi félags- og húsnæðismálaráðuneytis,
  • Helga María Pálsdóttir, fulltrúi Sambands íslenskra sveitarfélaga,
  • Hermann Jónasson, fulltrúi Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar,
  • Sigurður Hannesson, fulltrúi Samtaka iðnaðarins.

Með hópnum starfar einnig starfsfólk Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar.