Fréttasafn



24. jún. 2026 Almennar fréttir

Tækifæri í auknum viðskiptum Íslands og Bandaríkjanna

„Þetta eru skýr skilaboð um að bandarískir ráðamenn hafi tekið vel eftir þeirri verðmætasköpun og nýsköpun sem á sér stað í íslenskum iðnaði. Það er mikilvægt að svo stór og mikilvægur samstarfsaðili sjái mikil tækifæri í auknum viðskiptum, fjárfestingum og samstarfi við Ísland og íslensk fyrirtæki. Við höfum séð tækifærin líka, þau eru á báða bóga,“ segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, í Viðskiptablaðinu um kveðju Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, til Íslendinga í tilefni þjóðhátíðardagsins í síðustu viku þar sem hann lagði sérstaka áherslu á vaxandi efnahagslegt samstarf milli ríkjanna sem væri lykilstoð í sambandi Íslands og Bandaríkjanna og hann nefndi sérstaklega íslenska nýsköpun á sviði orku, gagnavera, líftækni, sjávarútvegs auk sprotafyrirtækja sem drifkraft aukinna viðskipta.

Bandaríkjamarkaður lykilmarkaður fyrir hugverkaiðnað

Sigurður fagnar yfirlýsingunni og segir hana merkilega fyrir ýmsar sakir. „Bandaríkjamarkaður er lykilmarkaður fyrir hugverkaiðnað, margar vörur sem eru afrakstur hugverkaiðnaðar verða til hér og eru fluttar út. Til dæmis eru tæki og vörur til lækninga núna stærsti einstaki vöruflokkurinn í útflutningi til Bandaríkjanna og skila meiri útflutningsverðmætum en þorskur,“ Í fréttinni kemur fram að hugverkaiðnaður hafi í fyrra verið þriðja stærsta útflutningsstoðin hér á landi og hafi þar með tekið fram úr sjávarútvegi. Sigurður segir að í lok þessa áratugar gæti hún orðið sú verðmætasta en það sé háð stefnumörkun stjórnvalda og markaðsaðstæðum.

Tækifærin í gervigreind þarf að sækja með markvissum hætti

Í Viðskiptablaðinu kemur fram að ráðherrann vísi sérstaklega til gagnaversiðnaðar, sem Sigurður segir áhugavert í ljósi nýlegrar heimsóknar fulltrúa bandaríska örgjörvarisans Nvidia til landsins og bendir á að Bandaríkin hafi verið leiðandi á heimsvísu í þróun búnaðar sem notaður er til þess að styðja við gervigreind. Hann segir það skipta öllu máli að eiga góð samskipti við Bandaríkin ef Ísland eigi að taka þátt í þeirri alþjóðlegu uppbyggingu sem nú eigi sér stað á sviði gervigreindar og stafrænna innviða. „Þess vegna er svo áhugavert að utanríkisráðherra Bandaríkjanna skuli bera kennsl á þau tækifæri en þau þarf að sækja með markvissum hætti í samstarfi stjórnvalda og iðnaðar. Áhuginn hingað til lofar góðu.“

Viðskiptablaðið, 23. júní 2026.

Vidskiptabladid-23-06-2026