Tækifæri í gervigreind til að liðka fyrir lækkun tolla
Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs, SI segir í frétt Sýnar að viðskiptatækifæri séu til staðar sem geti liðkað fyrir lækkun 15% tolla sem hafi verið settir á vegna meints viðskiptahalla sem Bandaríkjamenn telji sér í óhag. Tækifærin felist meðal annars í möguleikanum á að íslensk gagnaver þjónusti bandarísk gervigreindarfyrirtæki í auknum mæli og til að forsendur til aukinna viðskipta á þessu sviði skapist þurfi íslenskur iðnaður og stjórnvöld að snúa bökum saman. „Og Ísland hefur fram að færa græna raforku, ákjósanlegt loftslag fyrir vinnslu gervigreindar og annað. Þetta eru ekki nýjar hugmyndir. En núna þurfum við að hugsa út fyrir boxið og skoða hvort við getum mögulega tengt þessi tækifæri við fyrirhugaðar samningaviðræður, sem verða vonandi sem fyrst við Bandaríkjastjórn um hugsanlega lækkun tolla.“
Sigríður segir að samtal við stjórnvöld sé hafið, en útfæra þurfi næstu skref. „Eitt af því sem við höfum kallað eftir í samtölum við stjórnvöld er að það verði jafnvel sett einhverskonar samninganefnd af stað, með aðilum úr einkageiranum og frá hinu opinbera. Þetta er bara risastórt hagsmunamál fyrir Ísland.“ Hún segir að stjórnvöld þurfi að setja púður í að kortleggja tækifærin í þessum efnum og sjá hvað hægt sé að koma með að borðinu nú þegar fjöldi ríkja bíði þess að ná samkomulagi við Bandaríkin um lækkun eða afnám tolla. „Þá gæti það mögulega þýtt að við komumst framar í röðina.“
Vísir, 13. ágúst 2025.
Sigríður Mogensen í samtali við Véstein Örn Pétursson fréttamann hjá Sýn.