Fréttasafn



12. feb. 2026 Almennar fréttir Menntun

Tækniskólinn verður byggður í einum áfanga

Á Menntadegi atvinnulífsins sem fór fram í gær var undirritað samkomulag um að nýr 30.000 fermetra Tækniskóli við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði fyrir þrjú þúsund nemendur verði byggður í einum áfanga í stað tveggja. Þetta kemur fram á vef Stjórnarráðsins. Það voru Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Hildur Ingvarsdóttir skólameistari Tækniskólans, sem undirrituðu samkomulag þess efnis ásamt Sigurði Hannessyni, framkvæmdastjóra SI. 

Á vef Stjórnarráðsins segir að markmiðið með samkomulaginu sé að eyða óvissu um framtíð Tækniskólans og flýta fyrir byggingu burðarstólpa iðn- og verknáms á Íslandi á einum stað og í fullri stærð. Til hafi staðið að byggja skólann í tveimur áföngum, 24.000 m² í fyrri áfanga og 6.000 m² í þeim síðari. Með samkomulaginu nú sé búið að eyða óvissunni um síðari áfanga verkefnisins og flýta fyrir uppbyggingu skólans í fullri stærð. Bygging skólans í einum áfanga einfaldi fjármögnun, hönnun og framkvæmd, og flýti fyrir þeim samlegðaráhrifum í rekstri þegar öll starfsemi skólans flyst í eitt og stærra húsnæði. Þar verði öll starfsemi skólans sameinuð á einum stað, í framúrskarandi og nútímalegu húsnæði, sem muni efla iðn-, starfs- og tækninám á Íslandi.

Þá segir jafnframt að framkvæmdin feli ekki í sér aukin útgjöld fyrir ríkissjóð. Verkefnið verði fjármagnað með lánsfé og eiginfjárframlagi, þar sem húsaleiguframlag mennta- og barnamálaráðuneytisins samkvæmt þjónustusamningi muni standa undir fjármögnuninni.

Nánar á vef Stjórnarráðsins.

Mynd/BIG

Hildur Ingvarsdóttir skólameistari Tækniskólans, Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, og Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI.