Fréttasafn



5. jún. 2026 Almennar fréttir Mannvirki

Það leikur sér enginn að því að sitja uppi með óseldar eignir

Þetta er þróun sem við höfum áhyggjur af segir Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI, í Þetta helst á Rás 1 þar sem rætt er um stöðu á byggingamarkaði þar sem kemur meðal annars fram að framboð húsnæðis er meira en eftirspurn og birgðatími nýrra íbúða orðinn lengri. Jóhanna Klara segir að veltan sé að dragast saman, atvinnuleysi sé að aukast talsvert hratt og skuldsetning sé að aukast. „Þessir þættir eru merki um að nú fara hlutirnir að verða mjög þungir.“ Hún segir að um 1.700 íbúðir séu óseldar á markaði núna og það sé ofboðslegur kostnaður í þessu umhverfi sem hljótist af því að koma vörunni ekki út og að haustið muni verða mjög krítískur punktur fyrir þessi fyrirtæki. Hún segist vonast til að hægt verði að vinna með sveitarfélögunum sem fari með skipulagsvaldið að rétta af misræmi milli framboðs og eftirspurnar þannig að ekki sé verið að framleiða vöru sem ekki nægilega mikil eftirspurn sé eftir. Jóhanna Klara segir að það þurfi eitthvað að breytast þannig að með skömmum fyrirvara sé hægt að gera breytingar til að mæta eftirspurn. 

Þegar hún er spurð af hverju verðin á íbúðunum sem ekki seljist séu ekki lækkuð segist hún skilja þá umræðu en að hvert og eitt fyrirtæki þurfi að skoða og meta hvort það sé svigrúm til að lækka. „Ég veit alveg af því að það eru aðilar sem hafa gert það, aðrir sem telja sig ekki geta það og það er bara eitthvað sem að hver og einn er bara að skoða. Það leikur sér enginn að því að sitja uppi með óseldar eignir í þessu umhverfi.“

Hér er hægt að hlusta í heild sinni á umfjöllun Þetta helst. 

RÚV, 5. júní 2026.