Fréttasafn



26. mar. 2026 Almennar fréttir

Það þarf þjóðarsátt til að ná niður verðbólgu og vöxtum

Staða hagkerfisins hefur breyst hratt og nú sjást skýr merki um kólnun. Fyrirtæki eru orðin varfærnari, neytendur svartsýnni og blikur eru á lofti í iðnaði og í efnahagslífinu öllu. Á sama tíma er verðbólgan þrálát, fyrst og fremst vegna innlendra þátta. Stýrivextir Seðlabankans, sem gætu hækkað enn frekar, munu kæla hagkerfið áfram. Ekki er hægt að útiloka harða lendingu. Þetta segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, í grein í Morgunblaðinu. Hann segir að þessi staða kalli á sameiginleg viðbrögð. Nú sé rétti tíminn til að stilla saman strengina og finna samhljóminn um nauðsynlegar aðgerðir. Byggja þurfi á þjóðarsátt þar sem stjórnvöld, atvinnulíf og aðilar vinnumarkaðarins leggi sitt af mörkum til að ná niður verðbólgu og vöxtum, efli samkeppnishæfni Íslands og styrki verðmætasköpun.

Stefna og ákvarðanir hins opinbera styðji við stöðugleika en auki ekki á vandann

Sigurður segir í greininni að með þjóðarsátt sé hægt að draga úr óvissu, auka traust og tryggja að íslenskt hagkerfi standi sterkara til framtíðar. Það skipti sérstaklega miklu máli á óvissutímum á alþjóðavettvangi að við séum betur í stakk búin að mæta ytri áföllum og sækja tækifærin. Hann segir að það skipti sköpum að stefna og ákvarðanir hins opinbera styðji við stöðugleika en auki ekki á vandann. Auknar álögur, skattar og gjöld séu ekki grundvöllur sáttar við þessar aðstæður, heldur geti þær dregið úr fjárfestingu, atvinnu, samkeppnishæfni og framtíðarvexti hagkerfisins. Sigurður segir einnig að á sama tíma sé ljóst að nú sé ekki rétti tíminn til að draga úr mikilvægu uppbyggingarátaki. Fjárfesting í samgöngum og öðrum innviðum, menntun með áherslu á verknám og nýsköpun sé grundvöllur aukinnar framleiðni, samkeppnishæfni og stöðugleika.

Um tvennt að velja og ætti ekki að vera erfitt val

Í niðurlagi greinarinnar segir Sigurður að valið sé skýrt: Annaðhvort byggjum við á samhljómi og þjóðarsátt sem dregur úr verðbólgu, lækkar vexti og styrkir grunnstoðir hagkerfisins eða við tökum ákvarðanir sem auka óvissu og dýpka niðursveifluna. Þetta ætti ekki að vera erfitt val. Veljum stöðugleika, eflum verðmætasköpun og samkeppnishæfni Íslands.

Morgunblaðið / mbl.is, 26. mars 2026.

Morgunbladid-26-03-2026_1