Fréttasafn



16. feb. 2026 Almennar fréttir

Þakkir færðar formanni og þremur stjórnarmönnum SI

Formaður SI og þrír stjórnarmenn voru kvödd með formlegum hætti að loknum stjórnarfundi samtakanna sem fór fram síðastliðinn föstudag. 

Árni Sigurjónsson hefur verið formaður samtakanna síðastliðin sex ár frá því hann var fyrst kosinn árið 2020. Arna Arnardóttir og Vignir Steinþór Halldórsson hafa einnig setið í stjórn samtakanna síðastliðin sex ár. Hjörtur Sigurðsson hefur setið í stjórn samtakanna síðastliðin fjögur ár. Þau ganga öll úr stjórn á aðalfundi samtakanna sem fram fer 5. mars næstkomandi. 

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, þakkaði öllum fjórum fyrir þeirra mikilvæga framlag í starfsemi Samtaka iðnaðarins síðastliðin ár um leið og þau fengu afhent blóm. 

Sigurður Hannesson, Arna Arnardóttir, Árni Sigurjónsson, Vignir Steinþór Halldórsson og Hjörtur Sigurðsson.