Þarf að vera kýrskýrt að Ísland heyri undir evrópskan uppruna
Þetta er gríðarlega mikilvægt mál vegna þess að því þarna erum við að sjá Evrópusambandið setja fram þessa skilgreiningu Evrópskt í forgangi og skiptir auðvitað öllu máli fyrir Ísland að við heyrum þarna undir segir Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI, meðal annars í samtali við Björn Malmquist í Morgunvakt Rásar 1 um tillögu að löggjöf framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins sem á að styðja við iðnaðarframleiðslu í Evrópu, Made in Europe.
Lilja segir að Samtök iðnaðarins ásamt öðrum séu búin að vera að fylgjast með þessu máli og að það þurfi að vera kýrskýrt. „Vegna þess að mati samtakanna er þetta fordæmisgefandi fram á veginn, þess vegna erum við ásamt stjórnvöldum og öðrum að stíga frekar snemma inn í því þetta er auðvitað bara löggjafatillaga framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins eins og staðan er núna. Ef þetta verður að veruleika þá verður ofboðslega erfitt að ætla að fara í hagsmunagæslu á seinni stigum.“ Hún segir að verið sé að fylgjast mjög grannt með þessu og það skipti öllu máli fyrir okkur að við erum með þá sérstöðu hérlendis sem varðar álið sem sé skilgreint í reglugerðinni eða löggjafatillögunni. „Það er auðvitað ein af okkur mikilvægustu útflutningsstoðum og við þurfum auðvitað að gæta þess að við séum skilgreind þarna undir sem EES-ríki, til þess að tryggja aðgengi að mörkuðum því Evrópumarkaðurinn er einn mikilvægasti markaðurinn fyrir álið. Það er nánast allt álið okkar sem fer á Evrópumarkað og því þarf þetta að vera alveg kýrskýrt.“
Hér er hægt að hlusta á viðtalið við Lilju í heild sinni.
RÚV, 15. júní 2026.

