Fréttasafn



5. sep. 2022 Almennar fréttir Starfsumhverfi

Þarf fleiri hendur hingað til lands til að byggja undir lífsgæði

„Til að byggja undir lífsgæði hér á næstu áratugum þarf auðvitað fleiri hendur hingað til lands. Þannig að við sjáum fyrir okkur að tugir prósenta hér á vinnumarkaðnum verði af erlendu bergi brotnir. Þeir komi að utan, sem gætu verið jafnvel 40-50 prósent ef við horfum nokkra áratugi fram í tímann,“ segir Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, í frétt Snorra Mássonar á Stöð 2. 

Þjóðin eldist og því færri á vinnumarkaði fyrir hvern 70 ára og eldri

Í fréttinni kemur fram að frá 2010 hafi íslenskum ríkisborgurum fjölgað um 8,4% á meðan erlendum ríkisborgurum búsettum hér hafi fjölgað um 160%. Árið 2005 hafi innflytjendur verið 7% af starfandi fólki á vinnumarkaði á Íslandi og fjölgaði lítillega fram að hruni þegar þeim hætti að fjölga og frá 2011 hafi þeim fjölgað nær stöðugt. Nú sé talið að innflytjendur séu tæpur fjórðungur vinnuaflsins og að náttúruleg fólksfjölgun á Íslandi haldi engan veginn í við vöxt hagkerfisins. Af þeim 24.000 starfsmönnum sem bætist við á vinnumarkað hér á landi á næstu þremur árum verði 3.000 íslenskir og 21.000 að utan. „Það er auðvitað sama þróun hér og annars staðar í hinum vestrænum heimi. Þjóðin eldist sem þýðir að það verða færri á vinnumarkaði fyrir hvern sem er kominn af vinnumarkaði og orðinn 70 ára eða eldri. Þess vegna þurfum við auðvitað fleiri hendur og þær koma þá að utan,“ segir Sigurður.

Vonast til að sjá stórstígar framfarir í endurskoðun regluverks vegna erlendra sérfræðinga

Þá kemur einnig fram í fréttinni að auk almenns vinnuafls sé þörf á þúsundum erlendra sérfræðinga til viðbótar til landsins og þá þurfi að sögn Sigurðar að greiða götu þeirra og endurskoða regluverkið. „Það er bara mjög brýnt að gera það og ég veit að ráðherra iðnaðar hefur mikinn áhuga á því og það er vinna í gangi. Ég vonast til að sjá stórstígar framfarir þar núna á næstu mánuðum,“ segir Sigurður í fréttum Stöðvar 2.

Stöð 2/Vísi, 3. september 2022.