Fréttasafn



18. ágú. 2026 Almennar fréttir Mannvirki Starfsumhverfi

Þolmörk að nálgast þegar vanskilahlutfall þrefaldast

„Þegar vanskilahlutfall þrefaldast á hálfu ári er ljóst að þolmörkin eru að nálgast hjá hluta greinarinnar,“ segir Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri SI í frétt Morgunblaðsins þar sem kemur fram að alvarleg vanskil byggingariðnaðarins hjá stóru viðskiptabönkunum þremur hafi nær þrefaldast á fyrri helmingi ársins og námu 29,7 milljörðum króna um mitt ár samanborið við 9,3 milljarða um síðustu áramót. Hann segir stöðuna sýna hversu mikið álag sé á greininni og varar við því að Seðlabankinn hækki vexti þegar peningastefnunefnd bankans tilkynnir næstu vaxtaákvörðun 19. ágúst.

Þegar Sigurður er spurður hvaða áhrif það hefði ef Seðlabankinn hækkaði vexti í vikunni segir hann þau einkum þrenns konar: „Það hækkar fjármagnskostnað fyrirtækja sem þegar eru undir þrýstingi, það dregur úr fjárfestingu og það sendir þau skilaboð inn í endurskoðun kjarasamninga og fjárlagavinnuna að Seðlabankinn ætli einn að bera byrðina af hjöðnun verðbólgunnar.“ Sigurður segir síðastnefnda atriðið ef til vill alvarlegast.

Morgunblaðið / mbl.is, 17. ágúst 2026.

Morgunbladid-17-08-2026_1