Fréttasafn



16. okt. 2023 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Samtök fyrirtækja í líf og heilbrigðistækni Starfsumhverfi

Þungar áhyggjur af frumvarpi um lyf og lækningatæki

Rætt er við Sigríði Mogensen, sviðsstjóra iðnaðar- og hugverkasviðs SI, á mbl.is um frumvarp um upplýsingar um birgðastöðu lyfja og lækningatækja sem lagt hefur verið fram á Alþingi en bæði Samtök iðnaðarins, SI, og Samtök fyrirtækja í líf- og heilbrigðistækni, SLH, lýsa þungum áhyggjum af frumvarpinu í umsögn sinni. Í frétt mbl.is kemur fram að samtökin segi í umsögn mjög vonsvikin með vinnubrögð heilbrigðisráðuneytisins í tengslum við gerð frumvarpsins og leggjast alfarið gegn samþykki þess. „Þarna eru íþyngjandi kröfur lagðar á tugi eða hundruð fyrirtækja, án þess að haldbær rök liggi fyrir um það hvernig þetta eigi að þjóna markmiðum um hvernig eigi að bregðast við neyð.“ 

Sigríður segir að frumvarpið skili engum ávinningi og alls óljóst sé hvernig reglur af þessu tagi eigi að hjálpa ef kæmi til neyðarástands. „Við munum berjast gegn þessu af fullum þunga,“ segir hún í frétt mbl.is og bendir á að sam­tök­in skilji vel þá af­stöðu að tryggja birgðastöðu lyfja, en það sé ekki það sem þau setji sig upp á móti. „Við skiljum markmiðin og erum ekki á móti þeim, en leiðin að þeim er alveg galin og mun ekki skila árangri.“

Sigríður segir í frétt mbl.is að best væri ef málið færi aftur á byrjunarreit og að SI séu reiðubúin í samtal um hvernig hægt væri að tryggja öryggi landsmanna, kæmi til neyðarástands. „Iðnaðurinn mun ekki láta sitt eftir liggja ef upp kemur neyð. En það hvort við vitum nákvæmlega hve miklar birgðir af íbúfeni eða öðrum lausasölulyfjum eru í einhverju apóteki mun ekki skipta miklu þegar upp er staðið. Framleiðendur og innflytjendur lyfja eru fyrstir til að bregðast við skorti, það þarf ekki stjórnvöld til að tjá þeim það. Þetta er eitt versta dæmi forræðishyggju sem við höfum séð í lang­an tíma. Frumvarpið í heild sinni fer langt út fyrir öll skynsamleg mörk.“

mbl.is, 13. október 2023.