Fréttasafn



29. jún. 2026 Almennar fréttir

Þurfum að horfast í augu við stöðuna og grípa til réttra viðbragða

Heilt yfir myndi ég segja að iðnaður á Íslandi hafi verið í ótrúlega miklum og öflugum uppgangi yfir langt skeið en það er alveg sérstaklega athyglisvert það sem hefur verið að gerast á svona síðastliðnum 10-15 árum. Þetta segir Þorsteinn Víglundsson, forstjóri Hornsteins og formaður SI, í hlaðvarpi Markaðarins á Eyjunni þar sem Ólafur Arnarson ræðir við hann. Þorsteinn segir að hér sé kominn upp hugverkaiðnaður sem sé orðin viðbótarstoð undir útflutningstekjur og hafi vaxið gríðarlega mikið og náðiþeim áfanga í fyrra að ná sjávarútvegi að útflutningsverðmætum. „Sem ég held að komi æði mörgum á óvart hversu sterk grein þetta er orðið.“ Hann segir að þarna séum við að sjá fjölmörg tæknifyrirtæki, gagnaver og svo mætti áfram telja, sem byggi afkomu sína á hugverkum af einu eða öðru tagi og heilt yfir sé staða iðnaðar á Íslandi mjög sterk. „Ég myndi segja að ef ekki væri fyrir í raun og veru hversu sterkur iðnaðurinn er og hversu mikill vöxtur hefur verið í iðnaði á síðustu misserum, þá held ég að við værum í þyngri stöðu efnahagslega heldur en kannski raun ber vitni í dag. En auðvitað er þar mörgu um að þakka. Ferðaþjónustan auðvitað tók kannski sér í lagi á fyrstu árunum eftir hrun mikinn vaxtarkipp og orðin mjög sterk stoð undir útflutningstekjur og bara velferð þjóðarinnar. En hugverkageirinn hefur svo tekið kannski við að mörgu leyti í þeim vexti og svo er þetta líka árennilegt að sjá bara þar utan eins og fiskeldi og fleira að koma hér sterkt inn. Þannig að heilt yfir útflutningstekjur okkar standa sterkt, sem er auðvitað mjög mikilvægt fyrir lítið opið alþjóðlegt hagkerfi eins og við erum.“ 

Blikur á lofti í efnahagsmálum

Þorsteinn segir jafnframt að það megi segja, að öðrum greinum ólöstuðum, standi útflutningsgreinarnar að mörgu leyti undir okkar velferð, standi undir neyslugetu okkar erlendis og svo mætti áfram telja. „Þannig að þetta er mjög jákvætt að sjá, en að því sögðu þá verðum við líka að horfast í augu við það að það eru, eigum við að segja, blikur á lofti í efnahagsmálum. Ég held að við, svona þegar við erum að rýna í baksýnisspegilinn, getum sagt að við vorum kannski á toppi hagsveiflunnar á síðasta ári, við sjáum að afkoma hins opinbera er að versna núna heilt yfir, sveitarfélög og ríki, sem auðvitað endurspeglar bara, það er vaxandi atvinnuleysi, svona þessi hagsveifluleiðrétting sem gjarnan verður í afkomu hins opinbera.“ 

Erum að glíma við kreppuverðbólgu

Þá segir Þorsteinn að stýrivaxtastefna, peningastefnan, sé að hafa áhrif. „Hún er klárlega að hafa áhrif og við getum kannski rætt aðeins sjálfstætt vandamálið, við erum að glíma við kreppuverðbólgu, má segja í augnablikinu, sem er auðvitað mjög alvarleg staða sem við þurfum að leita leiða til lausna á. En auðvitað er ekkert óviðbúið þegar við horfum á þann kraft sem hefur verið í hagkerfinu hjá okkur á undanförnum árum að það slái aðeins í bakseglin og við erum að sjá núna blikur á lofti alveg klárlega í byggingariðnaði, sér í lagi kannski þegar lýtur að íbúðamarkaði. Sala á húsnæði hefur hægst verulega og þar auðvitað eru háir vextir að hafa veruleg áhrif og verðbólga. En ég myndi segja að svona heilt yfir hefur krafturinn í hagkerfinu verið aðdáunarverður hingað til og það er talað um og auðvitað alvarlegt að sjá, nú síðast voru Samtök atvinnulífsins að birta bara í morgun nýjustu viðhorfskönnun hjá stjórnendum og viðhorf stjórnenda til ástandsins í dag hefur ekki verið jafn svart frá því bara á tímum Covid og viðhorf þeirra til næstu sex mánaða er eiginlega enn svartara heldur en það var á tímum Covid, þannig að það er ákveðið áhyggjuefni. En við erum samt að mörgu leyti í mjög sterkri stöðu. Erlend staða þjóðarbúsins er sterk, skuldastaða heilt yfir, bæði heimila og fyrirtækja, bara heilbrigð staða bankakerfisins er mjög traust og svo mætti áfram telja, þannig að þetta er ekkert sem við getum ekki tekist á við, en auðvitað þurfum við við þessar kringumstæður að horfast í augu við stöðuna og grípa þá til réttra viðbragða.“

Hér er hægt að hlusta á viðtalið við Þorstein í heild sinni.

Myndin er af vef Eyjunnar.