Tímabundin lækkun virðisaukaskatts á matvæli er skynsamleg aðgerð
Ef markmiðið er að ná tökum á verðbólgu, styrkja kaupmátt og stuðla að stöðugleika í efnahagslífinu, þá er tímabundin lækkun virðisaukaskatts (VSK) á matvæli skynsamleg aðgerð, bæði fyrir heimili og atvinnulíf. Þetta segir Margrét Gísladóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í landbúnaði, í grein í Morgunblaðinu. Hún segir að nýleg stýrivaxtahækkun Seðlabanka Íslands, um 25 punkta, undirstriki að verðbólguvandinn sé enn viðvarandi. Róður heimila og fyrirtækja þyngist, hægst hafi á efnahagsumsvifum og atvinnuleysi hafi aukist. „Við erum komin í marglaga vanda sem ljóst er að ekki verður unnið bug á öðruvísi en með samstilltu átaki stjórnvalda, aðila vinnumarkaðarins og annara hagsmunaaðila með það að markmiði að ná niður vöxtum og verðbólgu með markvissum aðgerðum.“
Svíar lækka VSK á matvæli og lækka eldsneytisgjöld
Í greininni segir Margrét að sé litið til hinna Norðurlandanna megi sjá að víða séu stjórnvöld að ráðast í aðgerðir til að bregðast við viðvarandi efnahagslægð, meðal annars með tímabundinni lækkun á VSK á matvæli. Þannig hafi sænsk stjórnvöld tekið ákvörðun um að lækka VSK á matvæli úr 12% í 6% frá apríl 2026 til loka árs 2027, ásamt því að lækka eldsneytisgjöld. Hún segir að með því sé verið að grípa beint inn í kostnaðargrunn heimila og fyrirtækja, með það að markmiði að draga úr verðbólgu og styðja við efnahagslegan stöðugleika.
Danir áforma að gera breytingar á VSK-kerfi á matvæli
Margrét segir í greininni að í Danmörku hafi einnig verið rætt um svipaðar leiðir, þ.e. að nýta skattkerfið til að bregðast við hækkandi framfærslukostnaði. Þar eigi nú 30% landsmanna rétt á árlegri matarávísun sem hugsuð sé sem mótframlag ríkisins vegna hækkandi vöruverðs. Þar virðist hafa myndast þverpólitísk samstaða um að gera breytingar á VSK-kerfi á matvæli, en rætt sé um hvort lækka skuli VSK á allri matvöru eða fella VSK alveg niður á grænmeti og ávöxtum. Þá hafi sambærilegar hugmyndir verið til umræðu í Noregi, þ.e. að lækka VSK á matvæli sem lið í því að skapa efnahagslegan stöðugleika.
Álögur á matvæli komnar á radar íslenskra stjórnarmálamanna
Þá segir Margrét að aukna verðbólgu megi að nokkru leyti rekja til hækkunar á opinberum gjöldum og afleiddra áhrifa. Það sé því í hendi og á ábyrgð stjórnvalda að hafa áhrif til lækkunar á verðbólgu og vöxtum og þetta sé ein leið fyrir stjórnvöld til að leggja sitt af mörkum í þeirri vegferð. Hún segir að á Alþingi liggi nú fyrir þingsályktunartillaga um endurskoðun á álögum á matvæli, þar á meðal með tímabundinni lækkun VSK. Því sé ljóst að slíkar leiðir séu komnar á radar íslenskra stjórnmálamanna. Jafnframt segir Margrét í greininni að tímabundin lækkun VSK á matvælum geti bæði létt undir með heimilum og haft áhrif til lækkunar verðbólgu. Slík aðgerð þyrfti þó alltaf að vera skýrt afmörkuð í tíma og unnin í samráði við atvinnulífið, þannig að tryggt sé að ávinningurinn skili sér til neytenda og inn í hagkerfið í heild. Auk þess að bæta hag heimila geti lækkun VSK á matvæli einnig stuðlað að auknum stöðugleika á vinnumarkaði.
Á vef SAFL er hægt að lesa greinina í heild sinni.
Morgunblaðið, 25. mars 2026.

