Fréttasafn



18. ágú. 2026 Almennar fréttir Starfsumhverfi

Tvísýnt að vextir verði óbreyttir eða hækki um 25 punkta

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, segir tvísýnt með næstu vaxtaákvörðun Seðlabankans í hlaðvarpsþættinum Grjótkastið þar sem Björn Ingi Hrafnsson ræðir við Sigurð og Þórð Pálsson. Sigurður segir að það séu rök fyrir hækkun því að verðbólgan sé þrálát en hins vegar sé það þannig að meginorsakirnar fyrir verðbólgunni núna séu ytri aðstæður sem Seðlabankinn hafi ekki stjórn á. „Og síðan eru háir vextir sannarlega farnir að hafa áhrif, tilætluð áhrif. Við sjáum það til dæmis í auknu atvinnuleysi og við sjáum það í auknum vanskilum til að mynda. Vanskil í byggingariðnaði hafa þrefaldast frá áramótum. Atvinnuleysistölurnar eiga eftir að hækka núna á næstu vikum þegar að þeir einstaklingar fara á atvinnuleysiskrá sem var sagt upp störfum núna í í vor eða byrjun sumars. Síðan er það þannig að peningastefnan þarf að vera framsýn. Eins og við höfum rætt og hlustendur þekkja að þá tekur það 6, 12, jafnvel 18 mánuði fyrir vaxtaákvarðanir að skila sér til að hafa áhrif að fullu þannig að það eru alveg rök líka að okkar mati fyrir fyrir óbreyttum vöxtum að sinni. En ég held að það sé tvísýnt á milli þess að vextir verði óbreyttir eða hækki um 25 punkta.“

Hér er hægt að hlusta á viðtalið við Sigurð og Þórð í heild sinni.

Grjótkastið, 18. ágúst 2026.