Fréttasafn



29. nóv. 2023 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Mannvirki Orka og umhverfi

Umhverfisdagur atvinnulífsins fer fram í Hörpu í dag

Umhverfisdagur atvinnulífsins fer fram í dag 29. nóvember í Norðurljósum, Hörpu kl. 13.00-15.00. Tengslamyndun milli kl. 15.00-16.00. Dagurinn er sameiginlegt verkefni SA, SI, SAF, Samorku, SFF, SFS og SVÞ. Hér er hægt að skrá sig á Umhverfisdag atvinnulífsins.

Dagurinn í ár er tileinkaður Loftslagsvegvísum atvinnulífsins þar sem koma fram 332 tillögur að aðgerðum sem eiga að stuðla að auknum samdrætti í losun atvinnugreinanna.

Dagskrá lýkur með hinum árlegu Umhverfisverðlaunum atvinnulífsins sem Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, afhendir.

Dagskrá

Setning - Sigríður Margrét Oddsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins

Orkuframleiðsla og aðgengi að orku

  • Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku, stýrir umræðum
  • Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
  • Auður Daníelsdóttir, forstjóri Orkunnar IS
  • Sævar Freyr Þráinsson, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur
  • Auður Nanna Baldvinsdóttir, framkvæmdastjóri Iðunnar H2

Einföldun regluverks

  • Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins, stýrir umræðum
  • Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
  • Dr. Edda Sif Pind Aradóttir, framkvæmdastýra Carbfix
  • Bogi Nils, forstjóri Icelandair
  • Álfheiður Ágústdóttir, forstjóri Elkem Ísland og leiðtogi vegvísis um kísiliðnað
  • Aðalheiður Snæbjarnardóttir, forstöðumaður Sjálfbærni hjá Landsbankanum

Fjárhagslegir hvatar til fjárfestinga

  • Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS, stýrir umræðum
  • Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, fjármálaráðherra
  • Björn Ingi Viktorsson, forstjóri Steypustöðvarinnar
  • Benedikt Gíslason, bankastjóri Arion banka
  • Guðmundur Kristjánsson, forstjóri BRIM

Innviðauppbygging

  • Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar, stýrir umræðum
  • Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra
  • Agla Huld Þórarinsdóttir, yfirmaður sjálfbærnimála Eimskips
  • Egill Jóhannsson, forstjóri Brimborg og leiðtogi vegvísis um vegasamgöngur
  • Svandís Hlín Karlsdóttir, framkvæmdastjóri viðskipta- og kerfisþróunar hjá Landseti

Lokaerindi

  • Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra

Umhverfisverðlaun atvinnulífsins 2023

  • Forseti Íslands, Guðni Th. Jóhannesson afhendir verðlaun fyrir Umhverfisfyrirtæki ársins og Umhverfisframtak ársins 2023

Hér er hægt að fylgjast með streymi:

https://vimeo.com/884423718



Umhverfsidagur_Heilsida_loka