Fréttasafn



2. feb. 2021 Almennar fréttir Orka og umhverfi

Umræða um græna endurreisn

Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI, er meðal þeirra sem eru þátttakendur í fundi Samorku um græna endurreisn sem verður í beinu streymi miðvikudaginn 3. febrúar kl. 13.00-14.30. Fundinum er streymt á Facebook og Vimeo. Fundurinn er byggður upp á stutttum erindum, viðtalsbrotum við fólk í atvinnulífinu og pallborðsumræðum.

Dagskrá

  • Einkenni kórónukreppunnar - Anna Hrefna Ingimundardóttir, forstöðumaður efnahagssviðs SA
  • Lykillinn að grænni endurreisn - Páll Erland, framkvæmdastjóri Samorku
  • Pallborðsumræður:
  • Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, ferðamála-, iðnaðar- og nýsköpunarráðherra
  • Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins
  • Kristín Linda Árnadóttir, aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar.
  • Á fundinum koma einnig fram:
  • Berglind Rán Ólafsdóttir, framkvæmdastýra Orku náttúrunnar
  • Bjarnheiður Hallsdóttir, formaður Samtaka ferðaþjónustunnar
  • Guðlaugur Þór Þórðarson, utanríkis- og þróunarsamvinnuráðherra
  • Guðmundur Ingi Ásmundsson, forstjóri Landsnets
  • Hildur Ingvarsdóttir, skólameistari Tækniskóla Íslands
  • Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins
  • Sigurður Markússon, nýsköpunarstjóri hjá Landsvirkjun
  • Tómas Már Sigurðsson, forstjóri HS Orku
  • Fundarstjóri Lovísa Árnadóttir, upplýsingafulltrúi Samorku

Hér er hægt að nálgast streymið:
https://vimeo.com/506161256