Fréttasafn



15. apr. 2026 Almennar fréttir Menntun Nýsköpun

Ungir frumkvöðlar kynna nýsköpun á vörumessu í Smáralind

Vörumessa Ungra frumkvöðla fer fram í Smáralind dagana 17. og 18. apríl. Þar kynna alls 147 nemendafyrirtæki afrakstur 16 vikna nýsköpunarhraðals sem fer fram í framhaldsskólum víðs vegar um landið undir heitinu Fyrirtækjasmiðja Ungra frumkvöðla á vegum JA Iceland.

Verklegt nám sem skilar árangri

Í fyrirtækjasmiðjunni fá nemendur tækifæri til að stofna og reka eigið fyrirtæki, afla hlutafjár og þróa vöru eða þjónustu til markaðssetningar. Verkefnið byggir á verklegri nálgun og nýtur stuðnings mentora úr atvinnulífinu. Vörumessan markar lokapunkt verkefnisins og er jafnframt vettvangur þar sem nemendur kynna hugmyndir sínar fyrir almenningi og dómnefnd.

Fjölbreytt nýsköpun í brennidepli

Á messunni má finna fjölbreytt dæmi um nýsköpun. Meðal verkefna eru vörur unnar úr hráefnum sem annars færu til spillis, svo sem fiskroði, fiskinetum og endurnýttum textíl. Einnig má sjá heilsutengdar vörur á borð við vítamín- og kollagenlausnir, próteinríkt snarl og aðrar lausnir sem styðja við vellíðan. Þá kynna nemendur stafrænar lausnir, öpp og smáforrit sem eiga að einfalda daglegt líf, auk leikja og fræðsluefnis sem byggja á skapandi nálgun. Verkefnin endurspegla því bæði frumkvæði, umhverfisvitund og tengingu við þarfir atvinnulífsins.

Keppt í fjölbreyttum flokkum

Í tengslum við vörumessuna fer fram keppni þar sem veitt eru verðlaun í fjölda flokka. Keppt er meðal annars um Fyrirtæki ársins (1., 2. og 3. sæti), frumlegasta sölubásinn, öflugasta sölustarfið og áhugaverðustu nýsköpunina.

Einnig eru veitt verðlaun fyrir samfélagslega nýsköpun, áhugaverðustu fjármálalausnina, besta „sjó-bissnessinn“, matvælafyrirtæki ársins og bestu hönnunina. Þá eru jafnframt veitt verðlaun fyrir áhugaverðustu tækninýjungina, umhverfisvænustu lausnina og áhugaverðustu orkulausnina.

Dómnefnd metur framlag þátttakenda meðal annars út frá viðskiptahugmynd, útfærslu, kynningu á sýningarbás, myndbandi og lokaskýrslu. Sigurliðið hlýtur titilinn Fyrirtæki ársins 2026 og fær tækifæri til að taka þátt í Evrópukeppni JA, GEN-E, fyrir hönd Íslands.

SI styðja við unga frumkvöðla

Hulda Birna Kjærnested Baldursdóttir, sérfræðingur í mennta- og mannauðsmálum hjá SI, hefur umsjón með dómarastörfum í tengslum við keppnina. SI hafa stutt verkefnið í nokkur ár og Samtök atvinnulífsins einnig. Hulda Birna lítur á þetta sem mikilvægan vettvang til að efla tengsl menntunar og atvinnulífs. Hún hvetur almenning til að leggja leið sína í Smáralind um helgina og kynna sér hugvit og sköpunarkraft ungs fólks. Verkefni sem þessi gegni lykilhlutverki í að efla nýsköpun og undirbúa næstu kynslóð fyrir þátttöku í atvinnulífinu sem sé ein af grunnstoðum öflugs og samkeppnishæfs iðnaðar á Íslandi.