Uppskeran ríkuleg þegar við finnum samhljóm
Rætt er við Árna Sigurjónsson, formann SI, á Morgunvakt Rásar 1 um umfang iðnaðar. Þáttastjórnandinn Björn Þór Sigbjörnsson ræðir meðal annars við Árna um mikinn vöxt tækni- og hugverkaiðnaðar á síðustu árum. Þar kemur fram að útflutningsverðmæti þess iðnaðar er orðinn meiri en sjávarútvegs. Árni segir að þetta hafi verið ótrúlegur vöxtur sérstaklega síðustu tíu árin. „Það skýrist og tengist kannski fyrst og fremst yfirskrift á Iðnþingi svona óbeint en við höfum fundið samhljóm varðandi nýsköpun og hér hefur verði markaður mjög góður rammi utan um nýsköpunarfyrirtæki og þessi fyrirtæki sem starfa innan tækni- og hugverkaiðnaðar. Það hefur verið meðvituð ákvörðun og auðvitað hefur þetta verið baráttumál okkar í iðnaði og fyrirrennara minna og þeirra sem hafa staðið í stafni áður. Þannig að við getum sagt sem svo að uppskeran er ríkuleg og fjárfesting í nýsköpun leiðir til þessa mikla vaxtar og raunar hagvaxtar framtíðarinnar hjá okkur.“
Hér er hægt að hlusta á viðtalið við Árna í heild sinni frá mín 29:15.
RÚV, 4. mars 2026.

