Fréttasafn



28. feb. 2023 Almennar fréttir Mannvirki

Útboð þar sem lækka á kolefnisfótspor um 30%

Félagsbústaðir hafa auglýst útboðsgögn vegna nýs þróunarverkefnis sem hefur það að markmiði að lækka kolefnisfótspor framkvæmdar á 500 fm fjölbýlishúsi að lágmarki um 30% miðað við viðmiðunarhús. Notast hefur verið við greiningar eins og LCA, LCC og endurnýtingu byggingarefna til að ná því markmiði. Um er að ræða fjölbýlishús á þremur hæðum á Háteigsveg 59 við Vatnshólinn og Stýrimannaskólann. Fjölbýlishúsið er búsetukjarni fyrir fatlaða en gert er ráð fyrir 8 íbúðum í húsinu, þar af einni fyrir starfsfólk.

Útboðsgögn hafa verið gerð aðgengileg á útboðsvef Félagsbústaða. Kynningarfundur verður haldin um verkefnið með áhugasömum bjóðendum fimmtudaginn 2.mars i húsakynnum Félagsbústaða að Þönglabakka 4 kl. 16:00-17:00.

Felagsbustadir