Fréttasafn



12. jan. 2023 Almennar fréttir Félag vinnuvélaeigenda Innviðir Mannvirki Mannvirki – félag verktaka

Útboðsþing SI 2023

Útboðsþing SI 2023 sem er haldið í samstarfi SI, Mannvirkis - félags verktaka og Félags vinnuvélaeigenda fer fram þriðjudaginn 24. janúar kl. 13-16 í Háteig á Grand Hótel Reykjavík.

Á Útboðsþingi SI verða kynnt fyrirhuguð útboð ársins 2023 á verklegum framkvæmdum opinberra aðila.

Hér er hægt að skrá sig á þingið.

Þátttakendur í dagskrá

  • Ávarp Árni Sigurjónsson, formaður SI
  • Ávarp Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra
  • Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir Guðrún Ingvarsdóttir, forstjóri
  • Vegagerðin Óskar Örn Jónsson, forstöðumaður framkvæmdadeildar
  • Reykjavíkurborg Einar Þorsteinsson, formaður borgarráðs
  • Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri
  • Landsvirkjun Ásbjörg Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri framkvæmda
  • Landsnet Unnur Helga Kristjánsdóttir, forstöðumaður framkvæmda
  • Veitur Heimir Hjartarson, sérfræðingur í fjárfestingum hitaveitu
  • Isavia Páll Svavar Pálsson, forstöðumaður flugvallarþróunar og uppbyggingar
  • NLSH Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri
  • Samantekt Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
  • Fundarstjórn Björg Ásta Þórðardóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI

Auglysing_loka_eftir-breytingu