Útboðsþing SI í beinu streymi
Útboðsþing SI sem haldið er haldið í samstarfi við Félag vinnuvélaeigenda og Mannvirki – félag verktaka verður í beinu streymi í dag föstudaginn 21. janúar kl. 13–15. Á Útboðsþingi SI verða kynnt fyrirhuguð útboð ársins 2022 á verklegum framkvæmdum opinberra aðila. Þinginu er streymt og fá þau sem skrá sig á vef SI sendan hlekk á streymið. Hér er hægt að skrá sig á þingið.
Dagskrá
- Fundarstjórn Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI
 - Ávarp Árni Sigurjónsson, formaður SI
 - Ávarp Sigurður Ingi Jóhannsson, innviðaráðherra
 - Reykjavíkurborg Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri
 - Framkvæmdasýslan-Ríkiseignir Guðrún Ingvarsdóttir, forstjóri
 - Samtök sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu Páll Björgvin Guðmundsson, framkvæmdastjóri
 - Orka náttúrunnar Óskar Friðrik Sigmarsson, forstöðumaður Stefnu og árangurs
 - Landsvirkjun Ásbjörg Kristinsdóttir, framkvæmdastjóri framkvæmda
 - Faxaflóahafnir Magnús Þór Ásmundsson, hafnarstjóri
 - Vegagerðin Óskar Örn Jónsson, forstöðumaður framkvæmdadeildar
 - Landsnet Unnur Helga Kristjánsdóttir, forstöðumaður framkvæmda
 - NLSH Ásbjörn Jónsson, sviðsstjóri framkvæmdasviðs
 - Veitur Katrín Karlsdóttir, leiðtogi verkefnastjóra
 - Isavia Jón Kolbeinn Guðjónsson, deildarstjóri Hönnunar og framkvæmda
 - Samantekt Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri SI
 
Hér er hægt að nálgast beina streymið sem hefst kl. 13.00:



