Fréttasafn



20. ágú. 2026 Almennar fréttir Starfsumhverfi

Vaxtahækkun Seðlabankans vonbrigði

Þorsteinn Víglundsson formaður SI segir í fréttum Sýnar það  staðreynd að laun opinberra starfsmanna hafa hækkað talsvert umfram laun starfsmanna á almennum markaði. „Það er miður. Við tölum gjarnan um að sé mikilvægt að það sé verðmætasköpunin, útflutningsgreinarnar okkar, sem leiða það svigrúm sem sé til launabreytinga á hverjum tíma.“ Hann segir Seðlabankann benda réttilega á að rót verðbólguvandans liggi í vinnumarkaðnum. „Við erum að hækka laun talsvert umfram svigrúm og það skýrir að stórum hluta þá verðbólgu sem við erum búin að vera að glíma við. Ekki bara síðastliðið ár heldur síðastliðna áratugi.“

Þá kemur fram hjá Þorsteini að kólnunarmerkin séu augljós og segir ákvörðun Seðlabankans hafi verið sér vonbrigði. „Ég tel þetta dómgreindarbrest af hálfu Seðlabankans að hækka vexti við það umhverfi sem við erum að glíma við í hagkerfinu í dag.“ 

Hér er hægt að nálgast fréttina í heild sinni.

Vísir, 19. ágúst 2026.