Fréttasafn



1. sep. 2021 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Nýsköpun

Vaxtarsprotinn 2021 afhentur

Vaxtarsprotann 2021 verður afhentur í Kaffi Flóru í grasagarðinum í Laugardal á morgun, fimmtudaginn 2. september kl. 9.30. Þau sem vilja vera viðstödd skrái sig hér.

Það fyrirtæki sem sýnir mestan hlutfallslegan vöxt hlýtur nafnbótina Vaxtarsproti ársins. Fyrirtækið fær til varðveislu farandgrip með áletrun og sérstakan verðlaunaskjöld til eignar. Einnig er veitt sérstök viðurkenning til sprotafyrirtækis sem hefur sýnt mestan hlutfallslegan vöxt í flokki fyrirtækja sem velta á bilinu 100-1.000 millj. kr. og veitt er sérstök viðurkenning til sprotafyrirtækis sem náð hefur þeim árangri á síðasta ári í fyrsta sinn að velta meira en einum milljarði króna. 

Vaxtarsprotinn er samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins, Samtaka sprotafyrirtækja, Háskólans í Reykjavík og Rannsóknarmiðstöðvar Íslands. Tilgangur verkefnisins er að vekja athygli á góðum árangri sprotafyrirtækja í örum vexti og skapa þannig aukinn áhuga og skilning á uppbyggingarstarfi þessara fyrirtækja. Aðstandendur verkefnisins skipa dómnefnd sem sér um val á þeim fyrirtækjum sem hljóta viðurkenningu og nafnbótina Vaxtarsproti ársins.

Eftirfarandi fyrirtæki hafa hlotið Vaxtarsprotann: Kerecis (2020), Carbon Recycling International (2019), Kaptio (2018), Kerecis (2017), Eimverk (2016), Kvikna (2015), DataMarket (2014), Meniga (2013), Valka (2012), Handpoint (2011), Nox Medical (2010), Mentor (2009), Mentor (2008) og Marorka (2007).

Á síðasta ári var Vaxtarsprotinn 2020 afhentur í grasagarðinum í Laugardal. Á myndinni eru, talið frá vinstri, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, nýsköpunarráðherra, Ingólfur Guðmundsson, forstjóri CRI, Guðmundur Fertram Sigurjónsson, forstjóri Kerecis, Sigurður Halldórsson, framkvæmdastjóri Pure North Recycling, og Árni Sigurjónsson, formaður SI.