Fréttasafn



12. sep. 2022 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Nýsköpun

Vaxtarsprotinn 2022 afhentur á fimmtudaginn

Vaxtarsprotinn 2022 verður afhentur næstkomandi fimmtudag 15. september kl. 9-10 í Flórunni í Grasagarðinum í Laugardal. Hér er hægt að skrá sig á viðburðinn.

Það fyrirtæki sem sýnir mestan hlutfallslegan vöxt hlýtur nafnbótina Vaxtarsproti ársins. Fyrirtækið fær til varðveislu farandgrip með áletrun og sérstakan verðlaunaskjöld til eignar. Einnig eru veittar sérstakar viðurkenningar til fyrirtækis sem hefur náð góðum árangri í vexti. Veitt er sérstök viðurkenning til fyrirtækis sem náð hefur þeim árangri á síðasta ári í fyrsta sinn að velta meira en einum milljarði króna. 

Vaxtarsprotinn er samstarfsverkefni Samtaka iðnaðarins, Samtaka sprotafyrirtækja, Háskólans í Reykjavík og Rannsóknarmiðstöðvar Íslands. Tilgangur verkefnisins er að vekja athygli á góðum árangri sprotafyrirtækja í örum vexti og skapa þannig aukinn áhuga og skilning á uppbyggingarstarfi þessara fyrirtækja. Aðstandendur verkefnisins skipa dómnefnd sem sér um val á þeim fyrirtækjum sem hljóta viðurkenningu og nafnbótina Vaxtarsproti ársins.

Eftirfarandi fyrirtæki hafa hlotið Vaxtarsprotann: 1939 Games (2021) Kerecis (2020), Carbon Recycling International (2019), Kaptio (2018), Kerecis (2017), Eimverk (2016), Kvikna (2015), DataMarket (2014), Meniga (2013), Valka (2012), Handpoint (2011), Nox Medical (2010), Mentor (2009), Mentor (2008) og Marorka (2007).