Fréttasafn



2. sep. 2026 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Nýsköpun

Vaxtarsprotinn lyftistöng og hvatning fyrir fyrstu stóru vaxtarskrefin

Erla Tinna Stefánsdóttir, viðskiptastjóri tækni- og hugverkaiðnaðar hjá SI, segir í samtali við Viðskiptablaðið að Vaxtarsprotinn 2026 sem afhentur verður í 20. sinn í dag hafi reynst mikil lyftistöng og hvatning fyrir þekkt íslensk fyrirtæki á þeim tíma þegar þau voru að stíga sín fyrstu stóru vaxtarskref. „Þetta er ekki lengur einhver hliðargrein í dag og mörg af okkar flottustu og verðmætustu tækni- og hugverkafyrirtækjum, eins og Kerecis, Controlant, Sidekick og Nox Medical, hafa áður fengið þessi verðlaun og við þekkjum öll vöxtinn hjá þeim.“

Tækni- og hugverkaiðnaður mikilvæg útflutningsstoð Íslendinga

Erla Tinna segir að Vaxtarsprotinn hafi reynst mikil lyftistöng og hvatning fyrir þekkt íslensk fyrirtæki á þeim tíma þegar þau voru að stíga sín fyrstu stóru vaxtarskref. „Þetta er ekki lengur einhver hliðargrein í dag og mörg af okkar flottustu og verðmætustu tækni- og hugverkafyrirtækjum, eins og Kerecis, Controlant, Sidekick og Nox Medical, hafa áður fengið þessi verðlaun og við þekkjum öll vöxtinn hjá þeim.“ Hún segir jafnframt í viðtali Viðskiptablaðsins að tækni- og hugverkaiðnaðinn sé nú orðinn að mikilvægri útflutningsstoð Íslendinga og að mikilvægt sé að styðja við stuðningsnetið og kerfið sem sprotafyrirtæki reiða sig á. „Ísland þarf á áframhaldandi kröftugum vexti tækni- og hugverkaiðnaðar að halda til að tryggja framleiðni og hagsæld til framtíðar. Við þurfum að tryggja bæði áframhaldandi vöxt og stöðugleika. Skattahvatar vegna rannsókna og þróunar eru mikilvægasta tólið í verkfærakistu stjórnvalda til að styðja við nýsköpun og laða fram einkafjárfestingu.“

Þá kemur fram að Erla bæti við að það hafi verið gerðar miklar breytingar á þessu kerfi undanfarið, fyrst með lagabreytingum sem tóku gildi í byrjun síðasta árs, aftur á seinasta löggjafarþingi og svo standi yfir heildarendurskoðun á kerfinu. „Fyrirtækin þurfa skýran fyrirsjáanleika til að geta eflt samkeppnishæfni Íslands með þessari óþrjótandi auðlind okkar, hugvitinu.“

Viðskiptablaðið, 1. september 2026.