Fréttasafn



22. apr. 2026 Almennar fréttir Iðnaður og hugverk Starfsumhverfi

Vel sóttur fundur um útboðsmál í tækni- og hugverkaiðnaði

Samtök iðnaðarins stóðu fyrir fræðslufundi um útboðsmál fyrir félagsmenn í tækni- og hugverkaiðnaði þar sem áhersla var lögð á stafrænar lausnir. Fundurinn fór fram í Húsi atvinnulífsins og var vel sóttur.

Á fundinum fór Lilja Björk Guðmundsdóttir, yfirlögfræðingur SI, yfir samspil útboðsréttar og samkeppnisréttar. Fór hún sérstaklega yfir hlutverk og verklag SI. Þá fór Dagmar Sigurðardóttir, lögmaður og einn eigenda Lagastoðar og sérfræðingur í opinberum innkaupum, yfir helstu álitaefni við innkaup á hugbúnaði og hvað ber að hafa í huga við þátttöku í útboðsferli. 

Fundur-april-2026_1_1776849150786Lilja Björk Guðmundsdóttir hjá SI.

Dagmar Sigurðardóttir hjá Lagastoð.