Viðburður um árangur og framtíð heilbrigðistækni á Íslandi
Helix sem er meðal aðildarfyrirtækja SI stendur fyrir viðburði um heilbrigðistækni sem er að verða sífellt stærri hluti heilbrigðiskerfisins. Á viðburðinum sem fer fram miðvikudaginn 5. júní kl. 16.00 í Hannesarholti að Grundarstíg 10 verður fjallað um árangur og framtíð heilbrigðistækni á Íslandi. Erla Tinna Stefánsdóttir, viðskiptastjóri á iðnaðar- og hugverkasviði Samtaka iðnaðarins, stýrir fundinum.
Dagskrá:
- Sandra Mjöll Jónsdóttir-Buch, sérfræðingur í vísindum og nýsköpun Fönn Consulting | Heilbrigðistækni á Íslandi: Staða, stefna og stuðningur
- Hulda Hallgrímsdóttir, framkvæmdastjóri hjá Nox Medical á Íslandi og COO Nox Health | Leiðandi heilbrigðistækni Nox í Bandaríkjunum og Nox Medical tæknin sem umbreytir greiningu svefnsjúkdóma til framtíðar
- Kjartan Þórsson, stofnandi Prescriby | Ekki nóg að skapa lausnina, hvernig á að koma nýsköpun í heilbrigðiskerfinu í notkun?
- Einar Geirsson, forstöðumaður nýsköpunar hjá Helix | Rétt þjónusta á réttum tíma: Tímabókanir í heilbrigðiskerfinu
Hér er hægt að skrá sig á fundinn.