Viðhaldsskortur ógnar öryggi og framtíð vegakerfisins
Vegakerfi landsins líður fyrir áratugalangan skort á viðhaldi og nýframkvæmdum segir Sigþórs Sigurðssonar, framkvæmdastjóri Colas, í grein í Morgunblaðinu með yfirskriftinni Lögum holur. Í grein Sigþórs kemur fram að uppsöfnuð viðhaldsskuld vegakerfisins nemi 250–300 milljörðum króna og hafi Samtök iðnaðarins ítrekað bent á að framlög til viðhalds séu langt undir viðhaldsþörf, og að áformuð framlög næstu 15 ára muni ekki duga til að vinna á skuldinni. Hann segir að í ljósi þessa meti Samtök iðnaðarins framtíðarhorfur þjóðvegakerfisins neikvæðar líkt og komi fram í skýrslu SI sem þýði á mannamáli að vegunum muni hraka enn frekar nema gripið verði í taumana.
Vondir vegir skapa hættulegar aðstæður
Sigþór segir í greininni að vondir vegir geti skapað hættulegar aðstæður fyrir vegfarendur. Þegar klæðing sé orðin slitin eða bikblæðingar verði þá minnki gripið á yfirborði vegarins. Þá þurfi ekki að fjölyrða um hætturnar sem fylgi því að keyra í holur, sprungur eða skemmdir í vegum, en það geti hæglega valdið því að fólk missi stjórn á bílnum. Hann segir að fjölmörg óhöpp og slys – jafnvel banaslys – hafi verið rakin beint til ástands vegar og það séu slys sem hugsanlega hefði verið hægt að koma í veg fyrir, að minnsta minnka verulega líkurnar á. Þá kemur fram í grein Sigþórs að á hverju ári verði fjölskyldur og einstaklingar fyrir tjóni sem megi rekja til ástands vega. Heimilisbíllinn verði fyrir hnjaski og þurfi að fara á verkstæði. Því fylgi kostnaður, hvort sem það sé beinn kostnaður við viðgerðina, greiðsla sjálfsábyrgðar til tryggingafélagsins eða hækkað iðgjald í kjölfar tjóns.
Almenningur hvattur til að tilkynna holur
Í grein sinni segir Sigþór að lausnirnar á vanda vegakerfisins séu í sjálfu sér einfaldar en þær séu fjárfrekar. Hann segir að við verðum að stórauka fjárveitingar til vegagerðar, viðhalds og endurbóta til að geta lyft vegakerfinu okkar á hærra plan. Í niðurlagi greinar sinnar hvetur Sigþór almenning til að tilkynna hættulegar holur á vefsíðunni www.map.is/hola. „Með því að tilkynna um holótta vegi setjum við þrýsting á stjórnvöld að finna lausn á vanda vegakerfisins,“ segir Sigþór í lok greinar sinnar.
Morgunblaðið, 25. júní 2025.