Viðvörunarljós blikka allt í kringum okkur
Ég myndi segja í þessu samhengi að það blikka rauð viðvörunarljós allt í kringum okkur. Og það versta sem við getum gert núna er að vera bláeygð og værukær gagnvart stöðunni í heiminum. Þetta segir Sigríður Mogensen, sviðsstjóri iðnaðar- og hugverkasviðs SI, í Kastjósi þar sem rætt er um áhrif orkukreppu á Íslandi vegna átaka í Mið-Austurlöndum.
Hún segir jafnframt að við séum betur í stakk búin til þess að fást við þessar aðstæður en margar aðrar þjóðir í kringum okkur, meðal annars vegna þess að við höfum tekum mjög skynsamlegar ákvarðanir fyrir nokkrum áratugum síðan, húshitunarvæðingin og fleira. „En ef við tökum húshitun út fyrir sviga, þá er hagkerfið okkar og samfélagið, samgöngur og annað, keyrt áfram, sirka 40% af olíuinnflutningi. Við erum ekki jafn óháð olíu og margir telja. Og ég held að vanti aðeins upp á í umræðunni um það hversu háð okkar verðmætasköpun, atvinnustarfsemi, allt er olíu.“
Þá segir Sigríður að það sem skipti mestu máli núna sé að Samtök iðnaðarins hafi lengi talað fyrir því að flýta svokölluðu þriðju orkuskiptum, sem séu orkuskipti í samgöngum. „Og ef það er eitthvað ástand sem ætti að hvetja okkur áfram á þeirri vegferð, þá er það þetta ástand. Vesturlönd hafa að einhverju leyti, má segja, tekið lífskjör að láni. með því að vera gríðarlega háð orkugjöfum frá ríkjum eins og Íran, Rússlandi og fleira. Og það er að hafa mjög mikil áhrif á heimsmyndina og jafnvel að hafa áhrif á ákvarðanir um stríðsátök. Þannig að það sem ég vil kannski leggja mesta áherslu á er að við séum ekki værukærog flýtum uppbyggingu á innlendri orkuframleiðslu.“
Á vef RÚV er hægt að horfa á viðtalið við Sigríði í Kastljósi í heild sinni frá mín. 05:20.
Kastljós RÚV, 1. apríl 2026.
Bergsteinn Sigurðsson og Sigríður Mogensen.

