Vonbrigði ef undanþága frá CRR III verður ekki framlengd
Ákvörðun Seðlabankans í desember um að fresta innleiðingu var vissulega léttir í því þunga umhverfi sem uppbyggingaraðilar búa við og fögnuðu Samtök iðnaðarins þeirri ákvörðun. Það eru hins vegar vonbrigði ef bankinn hefur þegar bundið hendur sínar varðandi framhaldið, því tvö ár eru mjög stuttur tími í byggingariðnaði þar sem uppbyggingarverkefni eru skuldbindingar til langs tíma. Þetta segir Jóhanna Klara Stefánsdóttir, sviðsstjóri mannvirkjasviðs SI, í Viðskiptablaðinu þar sem fjallað er um að Seðlabankinn muni ekki framlengja undanþágu frá eiginfjárkröfum framkvæmdalána samkvæmt CRR III regluverki Evrópusambandsins.
Jóhanna Klara segir jafnframt að það gæti haft verulega neikvæðar afleiðingar nú þegar kallað sé eftir meiri og hraðari uppbyggingu. „Við höfum bent á að þetta regluverk byggir að stórum hluta á evrópskum aðstæðum þar sem vaxtaumhverfið er allt annað en hér og algengt er að verktakar selji stóran hluta íbúða fyrir fram, áhættan er því önnur. Hér á landi eru vextir mjög háir og því mun áhættusamara að festa söluverð snemma á byggingartíma, þ.e. áður en endanlegur kostnaður liggur fyrir. Ef þessar kröfur taka gildi óbreytt eftir tvö ár og engar ráðstafanir eru gerðar til að bæta starfsumhverfi uppbyggingaraðila gætu þeir neyðst til að hreinlega draga úr framkvæmdum.“
Viðskiptablaðið, 11. febrúar 2026.


