Fréttasafn



28. maí 2026 Almennar fréttir Mannvirki Meistarafélag byggingarmanna á Norðurlandi

Vorferð stjórnar MBN á Sauðárkrók

Stjórn Meistarafélags byggingarmanna á Norðurlandi, MBN, fór nýverið í hina árlegu vorferð stjórnar. Að þessu sinni lá leiðin á Sauðárkrók þar sem stjórnarmenn heimsóttu félagsmenn og fyrirtæki á svæðinu. Markmið ferðarinnar var að efla tengsl, kynnast starfsemi fyrirtækja á Norðurlandi betur og eiga góðar samræður um stöðu og framtíð greinarinnar.

Í ferðinni heimsótti stjórnin Trésmiðjuna Borg og Friðrik Jónsson byggingarverktaka, tvö rótgróin fyrirtæki sem hafa um árabil verið mikilvægur hluti af atvinnulífi Skagafjarðar og byggingargeiranum á Norðurlandi.

Trésmiðjan Borg hefur byggt upp öfluga starfsemi á sviði vandaðra innréttinga og trésmíðavinnu allt frá árinu 1963. Í heimsókninni fengu stjórnarmenn innsýn í starfsemi fyrirtækisins, þróun verkefna og hvernig fyrirtækið hefur aðlagað sig breyttu starfsumhverfi greinarinnar á undanförnum árum. Í dag starfa 17 starfsmenn hjá fyrirtækinu.

Friðrik Jónsson ehf. hefur sérhæft sig í nýbyggingum ásamt glugga- og hurðarsmíði frá árinu 1984. Auk þess hefur fyrirtækið í gegnum tíðina tekið að sér fjölbreytt verkefni á borð við viðhald eldri bygginga og sérsmíði á verkstæði.

Vorferðir stjórnar MBN hafa um árabil verið fastur liður í starfi félagsins og eru mikilvægur þáttur í að efla samstöðu og tengsl innan byggingargeirans á svæðinu. 

Stjórn Meistarafélags byggingarmanna á Norðurlandi.

1000021357

1000021361

1000021370

1000021376