Fréttasafn



29. apr. 2016 Menntun

400 stelpur tóku þátt í Stelpum og tækni

Vel tókst til með verkefnið Stelpur og tækni sem Háskólinn í Reykjavík, ásamt Ský og Samtökum iðnaðarins stóðu fyrir í gær. Viðburðurinn var haldinn í þriðja sinn en dagskráin hefur aldrei verið umfangsmeiri. Um fjögur hundruð stelpur úr grunnskólum á höfuðborgarsvæðinu og Austurlandi heimsóttu háskólann og hátt í 20 tæknifyrirtæki. Fyrirtækin sem stelpurnar heimsóttu voru Advania, Alcoa, CCP, GreenQloud, Íslandsbanki, Landsvirkjun, LS Retail, Marel, Mentor, NOVOMATIC Lottery Solutions, Meniga, Microsoft, Opin Kerfi, ORF Líftækni, Plain Vanilla, Qlik, Síminn og Tempo Software. Markmiðið með viðburðinum er að vekja áhuga stelpna á fjölbreyttum möguleikum í tækninámi og störfum, kynna þær fyrir fyrirmyndum í tæknigeiranum, brjóta niður staðalímyndir og sýna þeim fjölbreytileikann sem einkennir tækniiðnaðinn.

Vinnusmiðjur voru haldnar í HR í umsjá /sys/tra, félags kvenna í tölvunarfræði við HR, Skema og kennara tölvunarfræðideildar og tækni- og verkfræðideildar. Viðfangsefnin voru af ólíkum toga og í ár var meðal annars boðið upp á vinnusmiðjur um uppbyggingu tölvuleikja, heilarita, félagsgervigreind og brotaþol kjúklingabeina. Eftir að vinnustofunum lauk fóru stelpurnar í heimsókn í tæknifyrirtækin. Þar miðluðu konur sem starfa hjá fyrirtækjunum reynslu sinni, gefin var innsýn í í starfsemina og þau tækifæri sem stelpum bjóðast á vinnumarkaði að loknu tækninámi.

„Girls in ICT Day“ er haldinn víða um Evrópu í apríl á hverju ári og er styrktur af ITU (International Telecommunication Union) og Evrópusambandinu í tengslum við Digital Agenda-áætlunina. HR hefur haldið utan um daginn hér á landi frá upphafi, árin 2014 og 2015. Stelpur og tækni fór upphaflega af stað með styrk úr framkvæmdasjóði jafnréttismála og hefur nú hlotið veglegan styrk úr samfélagssjóði Alcoa